[ Lífið í Køben ] | ||
|
Ég býst vid thví ad thid viljid sennilega fá ad vita hvernig gekk á deitinu. Thad gekk mjög vel og líst mér bara vel á thennan grip. Thegar ég kom til hans hafdi hann gert forrétt, sem var hálf melona og í henni var einhversskonar rækjuréttur. Sem var ekkert smá gott. Thad fór nú ekkert fram hjá mér ad hann hafdi greinilega verid dáldinn tíma ad gera thetta listaverk hehe..enda mjög flott skreytt. En í adalrétt fengum vid kjúlla, grænmeti og pasta. Svo var thessu skolad nidur med gódu víni. Hann býr á mjög gódum stad, svolítid út úr borginni. Thad tók mig 40 mín ad hjóla..jabb..hehe ég hjóladi á deitid. Víst madur býr í Danmörku verdur madur víst ad haga sér eins og danir. En allavega, thá býr hann í mjög náttúrulegu umhverfi. Vid hlidina á heimili hans er risastór gardur (park) og thar er einnig stórt vatn. Vid vorum heppin med vedur og thví fórum vid í göngutúr thar eftir matinn. Eftir gönguna hyggede vi os :) Ég er allavega mjög sátt vid kvöldid. Finnst vera mikid varid í hann. Hann er gáfadur (mjög mikilvægt), myndarlegur (ekki oft sem thad fer saman ad vera gáfadur og myndalegur),búinn ad mennta sig og gódur kokkur...Hvad getur madur bedid um meira?? :) Reyndar finnst mér mjög skrítid afhverju hann er ekki genginn út, thad hlýtur ad vera einhver stóóór galli vid hann, en ég vona audvitad ad thad sé ekki. En thad kemur í ljós med tímanum, hann fær allavega séns til ad sanna sig...
Ég held ad danirnir séu nokkud gódir í thessum deit-málum. Allavega kunna their thetta miklu betur en Íslendingarnir ad mínu mati. Thad er alltaf thad sama heima, annad hvort er farid í bio eda út ad borda...allt of leim finnst mér (ekkert ílla meint strákar!!), en kannski er thetta bara ég. Ég hef allavega ekki kynnst strák ádur sem hefur farid thessa leid. Svo er Silla komin med einn danskan upp á ermina hehe...mér finnst thad mjög fyndid. Danirnir eru allavega ad gera góda hluti í thessum málum :=) En ad ödrum málum..Ég er búin ad vera ad reyna ad setja nýjar myndir inn í albúmid en thad er ekki alveg ad takast. Ætla ad reyna áfram ad fikta í thessu. Thad er nebbla kvóti, og ég er kominn yfir hann. Svo er ég ad reyna ad eyda nokkrum myndum út en thad tekst ekki..&%#¤&# draslid. Ætla samt ad reyna thetta, en thad getur vel verid ad ég gefist upp. Kemur í ljós.
Ég var ad fá sms ádan frá einum dana sem ég kynntist einmitt tharna um kvöldid. Hann var ad bjóda mér á stefnumót hihi..mér finnst thad nú soldid fyndid. Ég er jafnvel ad spá í ad fara, langar nú soldid :) Ég er samt búin ad segja vid sjálfa mig og vid adra ad ég muni aldrei líta vid dönunum...En madur á greinilega ekki ad segja aldrei hihi :)
Fyrir thá sem eru ad fara ad skemmta sér í kvöld, góda skemmtun!! Ég ætla allavega ad reyna ad skemmta mér...
Eftir thetta vorum vid tekin aftur út í sömu hópunum, nema hvad ad núna fórum vid út og á leidinni áttum vid ad kyssa alvöru svínshöfud sem ég gerdi ekki. Fannst thetta algjört vidbjódur og svo fyndid ad ég hló bara. Their reyndu nú ad fá mig til ad kyssa hausinn en ég gaf mig ekki. Thví næst fengum vid ad reisa okkur upp og thad var bundid fyrir augun á okkur. Vid áttum ad halda í næsta mann og elta hann einhverja leid annarsstadar inn í skólann. Á leidinni var mikid af ísköldu vatni sprautad á okkur, madur var alveg á floti. Svo thegar inn var komid fórum vid aftur á fjórar fætur og áttum ad ganga inn á plast sem thvílikt óged var á. Sem ég sá eftir á ad hafdi verid braud, rifinn pappir og spaghetti, allt blautt og skemmtilega ógedslegt. Thetta var nokkur spotti sem vid thurftum ad fara í gegnum thetta og audvitad vorum vid med bundid fyrir augun á medan, thannig ad madur vissi ekkert hvad var ad gerast eda hvad myndi gerast næst. Svo heyrdi madur ad eldri nemendurnir voru sitthvoru megin vid plastid. Their voru svo med thessa blöndu og hikudu ekki vid thad ad klína thessu undir bolina hjá okkur og inn undir buxurnar. Algjört óged, vid vorum ansi skrautleg eftir thetta en thetta samt skemmtilegt ad mínu mati. Thad voru margir sem bjuggust vid verri medferd á okkur thannig ad flestir voru alveg sáttir vid thetta. En eftir thetta var thessu lokid og thví næst flýttum vid okkur Kirstine heim til hennar í sturtu. Thar höfdum vid okkur til og svo drifum vid okkur í matinn. Thegar í skólann var komid var búid ad leggja á bordid og rada sloppunum okkar á stólana. Ég tók einmitt fullt af myndum sem ég setti á síduna. Slopparnir voru allir mjög flottir og alls ekkert kvikindalegir. Sumir voru reyndar meira svæsnari en adrir hehe..minn var voda saklaus. Ég er nú alveg sátt vid minn :) Ég tók mynd af honum sem thid getid séd í myndaalbúminu. Í matnum fengum vid ad vita hverjid voru "slúdrarar" í bekknum okkar. Thad voru valdnir 2 úr hverjum bekk sem áttu ad komast ad einhverju um alla í bekknum og thad var sem sagt skrifad á sloppana. Slúdrararnir lentu sídan ílla í thví um kvöldid thví their voru látnir drekka slatta af samnemendum hehe... Ég var búin ad ákveda ad vera ekkert lengi, thví pabbi var ad koma thannig ad ég fór í fyrra laginu heim. Var komin heim klukkan hálf thrjú. Full seint en thad var bara svo gaman :) Alexander vaknadi sídan klukkan hálf sjö, thvi hann var svo spenntur ad sjá afa sinn. Audvitad vaknadi madur med honum thví hann var ekkert ad hafa hljótt. Pabbi kom svo med 2 kassa fyrir mig, sem ég var frekar spennt ad fá ad vita hvad var í, thannig ad ég tók upp úr theim strax og ég fór fram. Thad var nebbla spurning um hvort ad thad væri mikid brotid í theim thví thad hafdi ekkert verid rosalega vel med farid med thá á flugvellinum, en sem betur fer var thad ekki. Ég lagdi mig nú eftir thetta, var alveg ad leka nidur. Svo um daginn skelltum vid okkur í tívloliid, thad var rosa fínt og svo um daginn kom Steini frændi. Their fóru svo á tónleikana og vid Alexander fórum heim. Ég ætladi ad vera svo snidug ad leigja borvélina á medan ad pabbi var hérna, en hún var pöntud thannig ad ég fékk hana fyrst klukkan fjögur í gær. Pabbi fór í gær um hádegisbilid thannig ad ég gat ekki mikid notad hann, en ég ákvad svo bara ad gera thetta sjálf og núna er ég búin ad vera ad bora á fullu og er allt komid upp á vegg :) Ég er svooo dúleg. Thvílíkur munur á íbúdinni, thad var nebbla ekkert á veggjunum og veggirnir hvítir. Úff..nú er ég búin ad skifa ansi mikid. Vona bara ad fólk nenni ad lesa thetta hehe...
Pabbi og Steini eru ad koma um helgina. Pabbi kemur á föstud. en Steini á laug. Ég ætla nú ad skella mér á djammid á föstudaginn, mig hlakkar ekkert smá mikid til. Loksins kemst ég smá út :) Thad er nefnilega kittelfest í skólanum (sloppapartý á íslensku, frekar fáranlegt ord á okkar tungumáli) en thetta er alltaf haldid árlega. Í haust keyptum vid sloppa sem vid létum nemendur á ödru ári hafa. Their mála svo á thá allskonar teiknimyndafigúrur og mála svo nafnid thitt á thinn. Ef thú hefur gert e-d af thér um haustid getur thad komid á sloppinn og fylgir thad grín thér thad sem eftir er af verklega kúrsunum (sem eru fyrst búnir á fjórda ári). Thad verdur gaman ad sjá hvad verdur á theim hehe...Thó svo ad ég haldi ad thad verdi ekkert grín gert af mér, en madur veit aldrei ;) Allavega er einhversskonar athöfn á föstudaginn, sem byrjar klukkan fimm. Svo er bordad og djammad fram eftir kvöldi. Ég veit reyndar ekki hvad verdur gert thví fyrstu árs nemendurnir mega ekki vita neitt. Mig hlakkar allavega ekkert smá til ;) Thó svo ad Pabbi og Steini séu ad koma thá ætla ég bara ad fara. Ég er meira ad segja búin ad redda pössun, ótrúlegt en satt. Ég sá auglýsingu hérna á kollegiinu thar sem 23 ára íslensk stelpa var ad auglýsa eftir börnum til ad passa. Ég var audvitad snögg ad hringja og komst adthví ad thessi stelpa er nýflutt til Køben, býr rétt hjá kollegiinu med vinkonu sinni, talar ekki dönsku og er atvinnulaus. Ekki beint audvelt ad fá vinnu thegar madur talar ekki tungumálid. En hún var alveg til í ad passa fyrir mig, thannig ad ég er komin med tímabundna barnapíu :) Vid ætlum ad hitta hana á fimmtudaginn og ath hvort ad Alexander líst ekki bara vel á hana. Èg hef nú reyndar engar áhyggjur af thví. En thetta verdur thá thannig ad pabbi ætlar ad taka vid thegar hann getur. Ég býst reyndar vid thví ad vera ekkert lengi, en thad verdur ekkert smá gaman ad geta farid smá út og skemmt sér. Thad er komid vor í Danmörku. Undanfarid er búid ad vera glampandi sól og í kringum 12 stiga hita. Í vikunni er spád ad hitinn verdi í kringum 17 stig :) Svo styttist ódum í ad thad komi sumar. Um páskana var mjög gott vedur og var ég mikid inni ad læra undir próf. Ég er búin ad ákveda thad ad thegar ég fer í sumarprófin ætla ég bara ad skella mér í fælledparken (stór gardur vid hlidina á skólanum) med teppi og nesti og lesa thar í sólinni. Madur verdur ad reyna ad gera e-d gott úr thessu víst madur verdur í prófum í júni mánudi.
En annars er allt gott ad frétta hédan. Mér finnst svo skrítid ad ég thad séu páskar og ég er ekki heima á Ísafirdi :( Thetta eru reyndar ekki fyrstu páskarnir mínir sem ég er ekki heima, en mér finnst samt eins og ad thad séu ekki páskar. Allavega verd ég lítid var um thad hérna. En thad er allt í lagi ad vera hérna, er svo sem alveg sátt vid thad. Madur er bara vanur thví ad taka pásadjammid heima og fá gódan mat um páskana en thad verdur breyting á thví hér med. Ég ætla nú reyndar ad elda gódan mat fyrir mig og soninn en thad verdur nú sennilega ekki eins gott og hjá mömmu :) Samt er ég ekki med heimthrá, sem betur fer. Ég er loksins komin í mína "eigin" íbúd og búin ad koma mér ágætlega fyrir. Svo kemur pabbi thann 16 apríl og var ég jafnvel ad spá í ad leigja borvél og fá hann til ad bora fyrir mig. Ég er ekki alveg ad treysta thví ad bora sjálf í veggina. Ég gerdi thad einu sinni thegar ég bjó á Langholtsveginum en thad gekk ekki alveg upp hehe...Thetta er líka karlmannsverk ad mínu mati. Ég gæti svo sem alveg reynt thad aftur en ég held samt ad ég bídi bara med thad thangad til ad pabbi kemur. En annars fékk ég mail frá Jóhönnu um ad Sammi væri í Køben med fótboltanum og ad hann hefdi verid ad ná í mig en aldrei nád. Thannig ad ég sló á til hans og vid kíktum á kaffihús, ásamt Pétri og Gunna. Thad var rosa gaman ad hitta thá. Allavega alltaf gaman ad hitta andlit sem madur thekkir :) Ég tók eina mynd af theim sem ég skelli hér med á síduna ![]()
Ef ég væri á Íslandi núna væri ég á leidinni í ferminguna hjá Önnu Lísu frænku. Ég vil líka óska henni til hamingju med daginn. Ég vildi ad ég væri med fjölskyldunni minni núna, en thad styttist ódum í ad ég komi heim, bara næstum thví 2 mánudir :) og thad verdur enga stund ad lída. Thad er ekkert smá gaman ad thví hvad tæknin er ordin gód. Svo er bara svo gaman ad sjá íslenskar auglýsingar hehe... Mig langar svo til ad sjá restina af keppinni, en ég veit ekki hvort ad ég geti vakad svo lengi. Verd ad vakna snemma til ad læra. En vid sjáum til, ætla ad reyna eins og ég get :=) Annars held ég ad ég geti varla sofnad án thess ad sjá útslitin.Thad væri nú gaman ef strákarnir myndu komast í sæti.
|
Orri
Börnin
Mbl
Fréttir í DK
|