--> [ Lífið í Køben ]

 [ Lífið í Køben ]

 
 



þriðjudagur, maí 31, 2005  

Fyndið þegar að maður kemur frá svona litlum bæ að þá kemur auðvitað allt í bb. Skoða síðuna þeirra daglega og núna fannst mér mjög gaman að sjá þessa frétt. Maður missir þá allvega ekki af miklu. Finnst hún samt voðalega litrík hjá þeim..verð að segja eins og er...Virkar líka alveg jafn lítil eins og TF-POL en það er kannski bara svona á mynd. Það verður gaman að geta farið bara eina ferð í Fljót í sumar með danina í stað tveggja. Hlakka mest til þess að sjá hvernig þau bregðast við að þurfa að fljúga í svona lítilli vél...

Posted by: Sandra @ 19:39  

Prófið í dag var hræðilegt!!! Er alveg brjáluð!!! Er búin að tala við marga úr bekknum og það eru bara allir í sjokki :(

Posted by: Sandra @ 19:19

mánudagur, maí 30, 2005  

Ég var búin að ákveða að læra fram að Lost sem á að vera í imbanum í kvöld. Nema hvað að þegar ég kveikti á sjónvarpinu til að kíkja á hvenær þátturinn á að byrja voru allar stöðvarnar úti og það eru þær enn!! Þegar að ég fór að ath þetta nánar komst ég að því að allt svæði 2300 í Kbh er úti!! Arrrggg..mig var farið að hlakka svo til...Má sko ekki missa af þætti hehe.. Er alveg komin með nóg af Mikrobiologi. Er að fara í prófið á morgun og nenni enganvegin meiru í bili...

Posted by: Sandra @ 21:42

sunnudagur, maí 29, 2005  

Ég hef heyrt að það sé draugagangur hér á Øresundskollegiinu, en ég hef ekki neitt orðið vör við það. Núna rétt í þessu kveiknaði bara allt í einu á sjónvarpinu mínu þegar ég var að lesa...Spúkí!! Ætli draugurinn sé að segja mér að fara að horfa á sjónvarpið og láta bækurnar eiga sig í bili...Já ég held það hehe...

Posted by: Sandra @ 22:29  


Sigurjón var að senda mér myndir af Alexander og ég bara varð að setja eina hingað inn....

Ég sakna hans svooo mikið!! :*

Posted by: Sandra @ 21:45  

Það er ótrúlegt hvað maður getur verið fastur í eigin hugsunarheimi í langan tíma. Dagurinn í dag er einmitt búinn að vera þannig. Er búin að vera að hugsa svo mikið um hlutina og velta mér allt of mikið upp úr þeim. Má eiginlega ekki vera að gera þetta akkurat núna, verð að halda áfram með lesturinn, en það er ekki beint auðvelt að hætta að hugsa um það sem er í gangi þessa dagana.

Það er nefnilega komið í ljós að Orri er að fara til Afríku. Hann fer í lok júlí og kemur tilbaka sennilega í lok janúar. Þetta er ekkert smá frábært tækifæri fyrir hann. Á eftir að vera rosaleg upplifun og þessi staður er alveg geðveikur. En...vá hvað þetta á eftir að vera erfitt...

Posted by: Sandra @ 14:43

laugardagur, maí 28, 2005  

Maður er búinn að vera ansi bissy undanfarna daga. Læra,læra,læra og læra. Í gærkvöldi kom Sigga og Cille í heimsókn. Við pöntuðum okkur pizzu og tókum dvd. Gaman að breyta aðeins til þegar hversdagslífið gengur bara út á það að lesa um vírusa,RNA og DNA, ofnæmiskerfið, sýklalyf og fleira....

Annars ætla ég nú að reyna að vera dugleg að læra í dag. Held samt að það verði nú ekki mikið út úr deginum þar sem að við Orri erum að fara í barnaafmæli hjá fjölskyldunni hans klukkan tvö. Við ætlum samt að vera dugleg og fara á bókasafnið núna og lesa þangað til að afmælið byrjar.
Við vöknuðum við póstmanninn í morgun klukkan hálf átta. Finnst það nú full snemmt miðað við það að það sé laugardagur. En mér fannst það samt sem áður ekki taka sig að leggja sig í klukkutíma þannig að ég ákvað að fara á fætur. Svo fór ég í þvottahúsið, fékk mér að borða og núna er ég að bíða eftir þurkkaranum. Finn það samt hvað ég er þreytt þegar ég skrifa núna, þannig að það þýðir ekkert að hanga meira við tölvuskjáinn, ætla að fá mér orkudrykk og drífa mig af stað á bókó því annars verður ekkert úr deginum....

P.s það er 18 stiga hiti og sól og klukkan er ekki orðin 10!! Loksins er sumarið komið!!

Posted by: Sandra @ 09:41

miðvikudagur, maí 25, 2005  

Það er spáð í kringum 30 stig hérna um helgina og maður þarf að vera inni og lesa!!!

Annars var ég að tala við Kirstine, bekkjarsystur mína sem ætlar að koma með mér til Íslands í júní ásamt kærastanum sínum, honum Jónasi. Hún var að segja mér að Jónas hafi verið að kaupa bók um Ísland. Í þessari stórskemmtilegri bók var sagt að Íslendingar væru svo tískusinnaðir (snobbaðir) að maður kæmist hvergi inn á skemmtistaði ef maður væri í gallabuxum. Svo var varað við því að maður yrði að muna að taka bensín oft þar sem að maður gæti lent í því að verða bensínlaus einhversstaðar í rassgati!! Kirstine hafði áhyggjur af þessu þar sem að Jónas á nánast bara gallabuxur og svo eitt stykki smóking. Hann var að velta því fyrir sér hvort að hann þyrfti að taka hann með!! hehehe...

Posted by: Sandra @ 20:38

mánudagur, maí 23, 2005  

Ég er búin að vera með hnút í maganum í allan dag... Ástæðan er sú að Orri fór í viðtal í sambandi við að fara í praktík í útlöndum. Það gekk vel og fær hann að vita á miðvikudaginn hvort hann fái plássið. Hann mun þá fara til Zanzibar í Afríku í 180 daga!!! :( :( Spennan er gífurleg og er alveg að fara með mann...
Á erfitt með að einbeita mér, en er að þrjóskast áfram...
Verð að halda áfram að lesa :( bara 8 dagar í fyrsta prófið!!

Posted by: Sandra @ 18:58

sunnudagur, maí 22, 2005  

Þessi helgi hefur verið mikil lestrahelgi þó svo að ég hefði viljað að lesa meira. Núna er ég hinsvegar búin að fá nóg í bili. Við erum nokkrar úr bekknum sem ætlum að hittast á morgun og reikna gömul próf og var planið hjá mér að vera búin að lesa allt námsefnið fyrir morgundaginn en ég var ansi bjartsýn hehe..Það er talsvert eftir en vá hvað ég er ekki að meika meira púff.. ekki það að þetta sé ekki skemmtilegt, bara svo mikil smáatriði þannig að það tekur þvílíkan tíma að lesa þetta. En sem betur fer eru stelpurnar í hópnum mínum á sama leveli og ég þannig að við vorum búnar að tala um að við skildum reikna fyrripart dags og nota svo seinnipartinn til að lesa. Þannig að ég er að vonast til þess að þetta reddist...

Annars er orðið rosa gott veður hérna í Köben. Í dag var mjög heitt, skrapp aðeins út og fannst ekkert smá súrt að vera inni og lesa :/Það hefur örugglega verið um 20 stig!!
Í gær gerði ég heiðarlega tilraun til að fara á bókasafnið. Sá að það var smá rigning en var ekkert að pæla meira í því. Svo legg ég af stað og þegar ég er komin hálfa leið kom þvílík demba og ég varð gjörsamlega rennandi blaut í gegn!! þannig að ég ákvað að snúa við og lesa heima. Svo um leið og ég var komin inn og búin að skipta um föt hætti að rigna og svo stuttu seinna kom sól!! alveg ótrúlegt...týpist ég að lenda í þessu hehe...

Posted by: Sandra @ 21:14

föstudagur, maí 20, 2005  

Þetta finnst mér bara fyndið..Fann þessar myndir hjá henni Hildi

Rosalega innileg og með undirhöku!!! hehehehe




Posted by: Sandra @ 12:23  

Ég ætlaði aldrei að geta sofnað í nótt. Snéri mér og snéri og pirraðist út í sjálfan mig fyrir að vera að hugsa svo mikið. Alveg óþolandi... Svo í morgun átti ég að mæta á síðasta fyrirlesturinn minn klukkan níu. Ég var frekar sein fyrir þar sem að það var frekar erfitt að vakna, snúsaði bara í hálftíma og þar af leiðandi varð ég pínu stressuð þegar ég loks fór á fætur. Þegar ég kem út blasir við mér þá hræðileg sjón að það var sprungið á hjólinu mínu!! Þannig að ég varð að taka metró og svo strætó. Sem betur fer kom ég bara nokkrum mín.of seint þannig að þetta reddast, að ég hélt. Því eftir fyrirlesturinn var ég búin að mæla mér mót við eina bekkjarsystur mína. Við erum búnar að vera að skila saman skýrslum í vetur í örverufræðinni og ætluðum við að ljósrita hjá hvor annarri. Nema hvað að hún mætti ekki!! Ég hringdi í hana og þá sagðist hún hafa sofið yfir sig. Hún býr einhversstaðar lengst í rassg...og var ég enganveginn að nenna að bíða eftir henni þannig að ég fór heim. Svo er síminn minn farinn að klikka þannig að það getur ekki verið meira sem hefur klikkað í dag!!
Sumir dagar eru svona....

Ætli maður verði ekki að redda þessu blessaða hjóli sem fyrst því það er ekki hægt að vera hjólalaus hérna :/ Það er bara eins og að vera bíllaus í Rvk, engan veginn hægt!!

Annars er ég að vona að dagurinn haldi ekki áfram svona hrikalegur, er á leiðinni á bókasafnið og verður leikur gærdagsins endurtekinn þar, þ.e.a.s endalaus lestur og skemmtilegheit!!
Eina jákvæða við þennan dag er að ég er að fara að hitta Orra minn í kvöld. Er ekki búin að hitta hann í laaaangan tíma þar sem að hann býr bókstaflega þessa dagana í skólanum sínum þannig að það verður bara gaman að fá loksins að hitta karlinn :)

Posted by: Sandra @ 11:42

þriðjudagur, maí 17, 2005  

Eitthvað gengur það nú ílla að koma sér almennilega í gang í próflestrinum :/ Afhverju er það alltaf þannig að þegar maður á að vera að læra þá gerir maður eitthvað allt annað en að læra?!?Ég er alveg búin að sjá það að þýðir ekkert fyrir mig að vera hérna heima að læra. Ég gerði heiðarlega tilraun til þess í dag en eins og oft áður klikkaði það. Þannig á morgun er það bara bókó. Er alltaf að reyna að prófa að vera heima og lesa en núna er ég alveg búin að komast að því að það á bara ekki við mig....

Annars var ég að hugsa um að fara að þrífa íbúðina,þar sem að það er kominn tími á það og þar sem að það verður ekki hægt neitt á næstunni er það auðvitað besti tíminn til að gera það núna *hóst*.

Alveg merkilegt hvað ég verð alltaf andlaus þegar litli guttinn er ekki hjá mér. Þá verð ég alltaf rosalega löt við að vaska upp, á til að safna því upp (gerist annars nánast aldrei), nenni ekki að taka til, né setja í þvottavél. Það fer bara allt í vaskinn og ég fúnkera bara enganveginn rigtigt!!

Ég get ekki beðið eftir því að vera búin í þessum prófum því þá tekur það við að fara til Íslands, túristast um landið með Kirstine og Jonas, fara á ættarmót, fara til Fljótavíkur og slappa af í góða veðrinu ohh..sé það alveg í hyllingum!! :)

Posted by: Sandra @ 17:03

mánudagur, maí 16, 2005  

Þá er sonurinn kominn í öruggar hendur heim til Ísafjarðar. Ég er hálf vængbrotin hérna hinum megin við hafið, en sem betur fer á maður góða vini þannig að maður ætti ekki að láta sér leiðast. Í gær fór ég til Siggu í mat og höfðum við það mjög huggó saman. Ein dönsk vinkona hennar kom til okkar og var mikið kjaftað og horft á video inn á milli. Fyndið að hlusta á svona single-life sögur, ég er mjög fegin að vera ekki í þessum pakka. En samt er alltaf jafn gaman að hlusta á þær hehehe...

Svo í kvöld borðaði ég hjá Eyrúnu og ætlum við líka að elda eitthvað saman á morgun. Já maður á svo sannarlega góða vini hérna í Köben sem og á Íslandi!! :)

Posted by: Sandra @ 20:48

sunnudagur, maí 15, 2005  

Úff..ég var að koma heim frá því að fara með Alexander á flugvöllinn. Ákvað það á föstudeginum að það væri því miður best að senda hann heim. Þetta var án efa erfiðasta kveðjustund sem ég hef upplifað.Var með kökk í hálsinum og engu munaði að ég myndi fara að hágráta...úff..ég á eftir að sakna hans svo mikið :(

En það þýðir ekkert að sitja og vorkenna sjálfum sér. Núna ætla ég að hella mér í lærdóminn til að dreifa huganum.Var að hugsa um að lesa úti þar sem að það er svo rosalega gott veður, 17 stig og glampandi sól. Maður getur eiginlega ekki verið inni í svona veðri. Svo í kvöld ætlum við Sigga að elda saman heima hjá henni þannig að maður hefur engan tíma til að velta sér upp úr hlutunum sem betur fer. En jæja, ætla að drífa mig út í garð að lesa...

Posted by: Sandra @ 14:14

laugardagur, maí 14, 2005  

Mér finnst það alveg rosalega sorglegt þegar ég er minnt á það hversu mikið kjaftaland Ísland er. Það er alveg merkilegt hvað sumt fólk getur smjattað á "óheppni" annarra ef ég má orða það þannig. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því afhverju ég hef engan áhuga á að búa á Íslandi....

Alveg sorglegt, get ekki sagt annað...Skil samt ekki afhverju ég er eitthvað að pirra mig yfir þessu. Get alveg sjálfri mér um kennt þar sem að ég skrifa ýmislegt sem er allt of persónulegt á þetta blessaða blogg mitt. En mikið rosalega finnst mér þetta leiðinlegt. Þannig að ef það er eitthvað sem ykkur vantar að vita þá megið þið vinsamlegast spurja mig um það í staðinn fyrir að fara og spurja næsta mann að því....

Það er enginn fullkominn, bara að benda ykkur á það...

Posted by: Sandra @ 20:32

fimmtudagur, maí 12, 2005  

Vá hvað ég var pirruð þegar ég skrifaði síðustu færslu. Núna er ég hinsvegar alveg að gefast upp!!!

Í gær fékk ég heimsókn frá henni Hörpu. Við kjöftuðum og kjöftuðum og fannst mér rosa gaman að fá hana í heimsókn :) Eftir að hún var farin, fór ég að velta því fyrir mér að það væri sennilega best að senda Alexander heim til Íslands sem fyrst. Það helltist yfir mig að það eru ekki nema 19 dagar í Mikrobiologi-prófið mitt og ég á eftir að lesa svo mikið :( Þannig að ég sá að (eina?) skynsamlegasta lausnin væri að senda hann heim. Núna er ég hinsvegar mjög efins. Mig langar svo enganveginn að senda hann heim :( Ég var löngu búin að ákveða að ég ætlaði ekki að senda hann á undan mér, en eftir allt þetta vesen þá er maður farinn að tvístíga.
Mér finnst allt ganga svo hægt hérna með þetta skólamál hans Alexanders. Ég hringdi í gamla skólann hans í gær og talaði við ritarann. Hún sagði mér að skólastjórinn myndi sennilega hringja í mig seinna um daginn, en það gerði hann auðvitað ekki. Þannig að vonandi hringir hann í dag. Svo fór ég að velta því fyrir mér hvenær Alexander gæti byrjað í nýjum skóla. Það er bara ca. einn mánuður eftir af skólaárinu hjá honum þannig að það er nú ekki mikið.
En ef við lítum á dæmið þá gætum við sagt að ef skólastjórinn frá gamla skólanum myndi hringja í dag, þá myndi hann sennilega vilja að fá okkur á fund. Það myndi vera í fyrsta lagi á morgun eða í byrjun næstu viku. Þegar sá fundur væri búinn myndum við evt. vera búin að finna annan skóla. Þá þyrftum við að hafa samband við hann og fara á annan fund með þeim skóla. Það myndi sennilega gerast í sömu viku (ef maður er heppinn). Og ef allt myndi ganga upp þá gæti Alexander byrjað í nýja skólanum í vikunni á eftir. Þá væru aðeins nokkrir dagar í próf hjá mér!!! Og svo tekur alltaf tíma í að aðlaga þessi grey þannig að það tæki einhverja daga og þá væru nú ekki margir dagar sem ég gæti notað til að lesa :( Þannig að ég er alveg lost í þessu máli!!! Mér finnst það vera algjörlega neyðarúrræði að senda hann heim, en það er kannski skynsamlegast :( hvað á ég að gera?!?

Posted by: Sandra @ 08:53

þriðjudagur, maí 10, 2005  

Ég er eitthvað svo andlaus núna. Er svo þreytt á þessu veseni :( Langar bara til þess að spóla til baka og breyta svo mörgu!!

En það þýðir víst ekkert að vera svona neikvæð. Það er bara erfitt að komast hjá því þegar að allt er á niðurleið hjá manni.
Danska kerfið er bara algjörlega búið að bregðast okkur. Djö..þoli ég ekki þetta helv.kerfi!!!
Sorry blótsyrðið en maður er bara alveg búin að fá nóg af þessu. Það er enginn, ENGINN sem vill hjálpa manni. Allir benda bara á næsta mann og forða sér í burtu!!! Við værum aldrei í þessari stöðu á Íslandi, það þarf enginn að segja mér annað. Í fyrsta lagi hefði Alexander aldrei verið hent út úr skólanum heima og í öðru lagi væru allir til í að hjálpa manni. Hérna hugsa allir bara um rassgatið á sjálfum sér og öllum er svo nákvæmlega sama um útlendingana!!
Að auki er allt svo flókið hérna að það hálfa væri nóg!!
OHHH....ég er svo pirruð á þessu!!!

Posted by: Sandra @ 22:52

sunnudagur, maí 08, 2005  

Ég skellti mér á ball í gær með Í svörtum fötum. Skemmti mér þokkalega vel. Ég bjó til nýtt myndaalbúm:Myndaalbúm 3 þar sem ég skellti nokkrum myndum inn frá gærkvöldinu. Svo henti ég nokkrum gömlum inn líka...
Annars er kominn linkur inn á Árna og Hörpu, endilega kíkið á þau hjónakornin :)

Posted by: Sandra @ 20:10

fimmtudagur, maí 05, 2005  

Í dag og á morgun erum við í fríi. Það er æðislegt veður þannig að það er um að gera að drífa sig út í góða veðrið. Ég var að spá í að hjóla með Alexander í kongenshave og taka fótbolta fyrir hann og bók fyrir mig með. Svo er Sigga búin að bjóða okkur í mat í kvöld. Frábært að geta aðeins leitt hugann að einhverju öðru heldur en öllu því sem er búið að vera að gerast undanfarna daga.
Annars er nýjasta nýtt í þeim málum að ég hafði samband við PPR (skólasálfræðingafélag) og bað þá um að aðstoða okkur við að finna nýjan skóla. Það er náttúrulega endalaust af skólum hérna í þessari borg þannig að maður veit ekkert hvern maður á að velja. Í þetta skiptið verður að vanda valið ansi vel þar sem að við viljum alls ekki að hann skipti um skóla aftur. Þeir hjá PPR tilkynntu okkur að sá sálfræðingur sem hefði umsjón með okkar svæði væri í fríi og að hún kæmi aftur á þriðjudag. Þannig að það verður fyrst unnið í þessu máli á þri. eða mið. í næstu viku. Ég var ekkert voða ánægð að heyra þetta þar sem að mig langar að klára þetta dæmi og snúa mér að öðrum málum. Þetta er að taka allt of mikla orku frá manni og munu skólamálin mín lenda ansi ílla í því ef þetta reddast ekki fljótlega. Ég er nefnilega að fara í fyrsta prófið mitt 31 mai og er það mjög stórt próf (tveggja anna efni í örverufræði). En vonandi reddast þetta allt saman....

Svo átti Alexander að fara í hyttetur með skólanum sínum á mánudaginn og stoppa fram á miðvikudag, en kennararnir vilja ekki taka hann með :( þannig að hann verður að vera heima. Ekkert smá ömurlegt. Það var búið að vera að tala svo mikið um þessa ferð í skólanum þannig að hann var orðinn svo spenntur fyrir því að fara :( Og svo hafði ég einmitt hugsað mér að vera dugleg að lesa á meðan að hann myndi vera í burtu, en það lítur ekki beint út fyrir það núna.
En við verðum bara að gera eitthvað gott úr þessu þar sem þetta er svona....

Posted by: Sandra @ 11:03

þriðjudagur, maí 03, 2005  

Hehehe kíkið á þessa rúsínu, ekkert smá sætt!!!

Posted by: Sandra @ 21:10

mánudagur, maí 02, 2005  

Alltaf þegar það er stresstími hjá mér finn ég alltaf þörf fyrir því að versla. Undanfarna daga hef ég verslað alltof mikið. Ég er meðal annars búin að kaupa nýjan heimasíma, ryksugu, blandara og svo í dag fórum við í IKEA og var verslaður slatti þar. En eitthvað verður maður að gera þegar svona tímabil er. Kannski er þetta ekki beint það gáfulegasta sem maður gerir en svona er þetta, ég ræð bara ekkert við mig...Það er svona að vera tjelling :)

Annars eru komnar nýjar myndir inn á barnaland ef þið hafið áhuga á að kíkja. Þar getið þið forvitnu lesendur séð meðal annars nokkrar myndir af sætasta stráknum í Køben :)
Hér er t.d ein mynd af honum



Langsætastur :-)

Posted by: Sandra @ 21:36

sunnudagur, maí 01, 2005  

Þá er þessi blessaði fundur búinn. Hann gekk hreint og beint hræðilega. Ég er ekkert smá fegin að Orri og Funi komu með mér því ég hefði aldrei getað haldið andlitinu hefði ég farið ein. Skólastjórinn var bara einn á fundinum þó að við höfuðum farið fram á að kennararnir myndu vera þarna líka. Hann reyndi að halda orðinu allan tímann svo að við myndum ekki komast að og svo gerði hann ekkert annað en að segja það sama aftur og aftur. Orri var ekkert smá duglegur og lét hann heyra það (sem hann átti svo sannarlega skilið), en við Funi sögðum nú ekki mikið. Niðurstaða fundsins var að skólastjórinn og kennararnir teldu að þetta væri ekki rétti skólinn fyrir Alexander og að þeir gætu ekkert hjálpað okkur heldur ætti gamli skólinn hans að sjá um þetta mál, þetta kæmi þeim hreinlega bara ekkert við!! Einnig teldu þeir það vera best fyrir barnið að fara aftur í gamla skólann. Já einmitt...að láta hann byrja aftur í skólanum þar sem að honum leið ílla, held nú ekki. Við áttum ekki til orð yfir þessu, þvílík vinnubrögð. Okkur blöskraði svo mikið að við Orri erum búin að búa til bréf sem við ætlum að senda Margréti Danadrottningu. Hún er verndari skólans og finnst okkur að hún megi alveg fá að vita hvernig þeir vinna. Ég talaði við nokkra foreldra á fimmtudagskvöldinu og komst þar að því að það var ein mamman sem var búin að lenda í svipuðu dæmi og við, þó svo að syni hennar hafi ekki verið hent út úr skólanum. Hún var alveg brjáluð út í þá og er að velta því fyrir sér núna að skipta um skóla fyrir barnið sitt. Það er greinilegt að við séum ekkert einsdæmi. Mér finnst þetta vera rosalega slæmt fyrir skólann. Allavega finnst mér að fólk mætti alveg fá að vita hvernig þessi skóli er. Maður er ekki að skilja þessi vinnubrögð....

En þar sem að þetta var niðurstaða fundarins verðum við halda áfram og finna enn einn skólann og það sem fyrst því þeir vildu ekki einu sinni að leyfa honum klára þessa önn!!
Þetta á seinnilega ekki eftir að hafa góð áhrif á greyið barnið sem verður búinn að vera í þremur skólum á einum vetri!!! :( En við ætlum að reyna að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hann verður sáttur. Funi (barnasálfræðingurinn) ætlar að vinna með hann áfram þannig að maður vonar bara það besta....

Posted by: Sandra @ 23:18
 



Hafðu samband:

Sendu mér póst


Bloggarar:

Orri
Silla
Inda
Halla
Matti
Karen
Heiða
Lísbet
Gullan
Dúnna
Sunna
Sammi
Gúrkan
Thelma
Sæunn
Kolbrún
Aprí­l Eik
Háli Slick
Jóhanna
Helga Sif
Elín Marta
Bloggari.is
Aldí­s Marí­a
Þórey Ösp
Sigga Birna
Forystugeitin
Helga Sigríður
Gunnar Pétur
Harpa og Árni
Erna og Bjarni
Harpa Halldórs
Karen Konfekt
Ö–ssi og félagar
Gústi og Hrefna
Hildur og Halldór
Sæunn og Denni
Anna Lísa frænka
Gardentown Girls
Árgangurinn minn


Smáfólkið:

Börnin
Dagur
Anna Sól
Lucas Már
Noel Darri
Róbert Örn
María Kristín
Rúben Breki
Bjarki Kröyer
Ágústa María
Bryndí­s Hekla
Eysteinn Ernir
Arnar Ebenezer
Dagbjört Stjarna
Ragnheiður Elí­sabet
Ungi Huldu og Kristins
Sveina Rósa og Brynja
Rakel Mist og Vilhelm Ari
Svava Rún og Elma Katrí­n
Kristófer Karl og Júlía Marín
Róbert Arnar og Victor Aron
Victor Andri og Margrét Ásta
Sara Emily og Hörður Christian


Ýmislegt á IS:

Mbl
Leit.is
Femin
Skype
Tilveran
Batman
Húmor.is
Betra.net
Spámaður
Friendster
Íslendingabók
Vantar þig far?
Land barnanna
Útivistaparadí­sin
Fréttir frá Ísafirði
Webcam á Ísafirði


Ýmislegt í­ DK:

Fréttir í­ DK
Gulu síðurnar
Stúdentafélagið
íslendingafélagið
Kort yfir Danmörk
Miðasala á tónleika
Samgöngur í Danmörku
Allt um Kaupmannahöfn
Ferðaplan fyrir Danmörk
Webcam í­ Kaupmannahöfn
Upplýsingasíða um Danaveldi


Skrifaðu í gestabókina

MYNDAALBÚ™M 1

MYNDAALBÚM 2

MYNDAALBÚ™M 3

MYNDAALBÚ™M 4