--> [ Lífið í Køben ]

 [ Lífið í Køben ]

 
 



föstudagur, mars 31, 2006  

Komnar inn nýjar myndir á barnaland!

Posted by: Sandra @ 10:27

fimmtudagur, mars 30, 2006  

Gleymdi að segja ykkur aðrar gleðifréttir...við erum á leiðinni á tónleika með RADIOHEAD þann 5 mai!! Hvernig gat ég gleymt því að bæta þessu við í síðustu færslu...iss....

Posted by: Sandra @ 23:25  

Ég fór með Alexander í trommutíma í dag. Eftir þennan tíma var ég að vægast sagt stolt af guttanum mínum. Kennarinn hélt að Alexander væri búinn að æfa í nokkur ár á trommur!! honum fannst annað vera fáranlegt því hann væri svo góður!! já þetta var ansi flott hrós :) Svo sagði hann að það væri mikið varið í hann, hann væri fljótur að læra og að hann hefði svo sannarlega rythman ;) Það var ekkert smá gaman að heyra þetta :o)

Ég er ekki ennþá búin að finna gjöf fyrir hann. Ég mun því eyða morgundeginum í að stússast í því ásamt öðru. Vonandi finn ég eitthvað sem hittir beint í mark!

Helgin fer svo í dúllerí með syninum á afmælisdaginn að hans hætti og svo verður auðvitað lærdómur og þrif fyrir afmælið á listanum á sunnudeginum...

Vonandi eigið þið eftir að eiga góða helgi!!

Posted by: Sandra @ 21:44

þriðjudagur, mars 28, 2006  

Loksins er hitastigið komið í plúsgráður hjá okkur. Sem betur fer er spáð ágætisveðri næstu daga þannig að maður vonar að vorið sé komið til að vera...

Annars er allt gott að frétta héðan. Alexander verður 8 ára á laugardaginn..8 ára!! ég verð alltaf jafn hissa þegar nýtt ár líður og talan hækkar og hækkar!! púff..hehe...hann verður farinn að heiman áður en maður veit af!! :/
Við ætlum nú ekki að halda uppá afmælið um helgina þar sem að það hentar betur að gera það á þriðjudeginum eftir viku. En samt sem áður ætlum við að gera eitthvað skemmtilegt á afmælisdaginn. Við spurðum hann hvort að það væru einhverjar óskir og þá sagði hann: já..fyrst vil ég að við förum í sund, svo í bolchefabrikken (brjóstsykursverksmiðja) og svo á kaffihús!!
hehe..veit sko alveg hvað hann vill drengurinn...

Ég er aðeins að velta því fyrir mér hvort að ég eigi að fá mér aukavinnu með skólanum. Það verður þó varla skúringar þar sem að maður er alveg búinn að fá sinn skammt af þeim í gegnum tíðina þannig að ég hef hugsað mér að leita að einhverju öðru...

Verð víst að drífa mig í skólann..er að fara á labóið í farmakologi...Maður verður víst að vera með allt á hreinu þar sem að ég geri allt sjálf í hópavinnunni. Það er nú samt ástæða fyrir því þar sem það er ekki hægt að fá mikla hjálp frá makkerunum mínum, annar fatlaður og hinn litblindur og hálf sjónlaus!!

Posted by: Sandra @ 09:48

föstudagur, mars 24, 2006  

Ég er bara enganveginn að standa mig í að blogga...iss...
Alexander er loksins að jafna sig og þar sem að við höfum bara verið inni hefur ekki mikið gerst síðan ég bloggaði síðast. Þessa dagana er ég að stússast í skattaskýrslunum. Þetta er eiginlega í fyrsta skiptið sem það er eitthvað vesen með þær báðar. Ég fékk rukkun uppá 11.600 danskar frá danska ríkinu sem passar auðvitað enganveginn. Þannig að það þarf að stússast ýmislegt í því. Svo fattaði ég það fyrst um síðustu helgi að það átti að skila Íslensku skattaskýrslunni sl.mánudag!! Þannig að ég sótti um frest sem rennur út á mánudaginn!! púff...Það er eiginlega alltof stuttur tími þar sem að ég hef ekki náð að redda þeim pappírum sem þarf að redda. Það er ekkert smá leiðinlegt að standa í þessu...

Annars er bara voða lítið að frétta..er að leka niður úr þreytu...blogga meira við tækifæri...

Posted by: Sandra @ 22:41

mánudagur, mars 20, 2006  

Við erum búin að vera heima í dag þar sem litli gaurinn er veikur. Ég mældi hann í morgun og þá var hann með 39 stiga hita, mældi hann svo aftur í dag og þá var hitinn kominn niður í 38,3 gráður. Í morgun fékk ég svo hringingu frá einum nágranna mínum. Strákurinn hennar var kominn með gubbupest og þurfti hún nauðsynlega að fara til læknis þannig að hana bráðvantaði pössun. Jújú ég tók hann og greyið litli ældi bara og ældi útum allt og var ég eins og límband með skálina við hann því hann gat ekki látið vita því hann er svo lítill. En það dugði ekki til og var íbúðina ein æla þegar hún kom og sótti hann fjórum tímum seinna. Ég verð að viðurkenna það að það var nú ekki auðvelt að vera með tvo litla gaura sem þurftu báðir konstant athygli. En þetta reddaðist á endanum...

Annars áttum við góða helgi. Höfðum það huggulegt á föstudeginum og horfðum á Scenen er din eins og við gerum alltaf á föstudagskvöldum. Laugardeginum var svo eitt í þvottahúsinu og svoleiðis stússi. Um kvöldið fórum við Orri í innflutningspartý hjá dönskum vini frænda hans Orra. Þetta voru allt nýútskrifaðir tannlæknar eða læknar, eða við það að vera búnir. Ég átti alveg eins von á því að það myndi vera erfitt að spjalla við liðið þar sem að ég þekkti engann, en það var bara mjög auðvelt þar sem allir voru svo kammó. Maður fékk samt að finna vel fyrir því í gær..iss...kenni skotunum um..hehe..

Okkur var síðan boðið í mat í gærkveldi hjá Systu, frænku hans Orra ásamt frænda hans og kærustu hans. Sem betur fer vorum við búin að jafna okkur þannig að við gátum notið matarins og haft það huggulegt. Við áttum skemmtilegt kvöld saman og var það góður endir á vel heppnaðari helgi...núna hinsvegar býst ég við því að vera inni næstu daga..ekki alveg nógu gott útaf skólanum :/ en svona er þetta...

Posted by: Sandra @ 20:38

föstudagur, mars 17, 2006  

Ég fékk sendan tölvupóst í dag og horfði síðan í framhaldi af því á kompás síðan á sunnudaginn. Ég get alveg sagt það að ég var í sjokki eftir þennan þátt. Það er alveg með ólíkindum að þetta skuli virkilega vera svona...ég hvet ykkur öll til að horfa á þennan þátt ef þið sáuð hann ekki (það er hægt á visi.is) og kynna ykkur málið. Mér fannst alveg ótrúlegt hvernig Siv svaraði fyrir sig..manneskjan veit ekkert um málið og er alveg út úr kú...mig langaði mest til þess að kýla hana í gengum skjáinn!!

Hugsiði ykkur ef þið mynduð lenda í þessu sem þetta fólk lenti í...maður hugsar alltaf: Það kemur ekkert fyrir mitt barn...en það getur allt gerst og það á einni nóttu eins og hjá dóttur þessara stelpu. Ég hef fylgst aðeins með þessari síðu í nokkurn tíma og get ekki ímyndað mér hvað þetta hlýtur að vera erfitt fyrir þau....

Maður er greinilega alltof fáfróður um barnaspítala Hringsins..ég hélt t.d að það væri ALLT til staðar þar sem að hann er svo nýr og flottur, en það er langt í frá...

Að lokum vil ég benda á þennan línk...

Posted by: Sandra @ 17:56

miðvikudagur, mars 15, 2006  

Þá er ég búin að skila inn umsóknunum mínum...ég sótti um tannlækni nr.1 og lækni nr.2. Ég fór og skilaði þeim í morgun ásamt troðfullu húsi. Það var ekki hægt að komast hjá því að sjá hvað fólk var að sækja um..og hvað haldiði..mér fannst allir vera að sækja um tannsann!! Ég hef einhvernveginn ekki mikla trú á því að ég komist inn þar sem að það eru svo rosalega margir að sækja um...en maður verður að halda í vonina...Þeir gefa svar þann 28 júlí, þannig að það er löng bið framundan...

Annars setti ég inn nokkrar myndir á heimasíðuna hjá Alexander í gær..og svo er komin ný vefdagbókarfærsla...Einnig bætti ég við nokkrum nýjum linkum á heimasíðuna mína...
Ætla að drífa mig í því að lesa áður en ég fer og sæki guttann....

Posted by: Sandra @ 13:12

þriðjudagur, mars 14, 2006  

Ég hef...

( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið ástfangin/n
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
(x) lent í slagsmálum (j
á það hefur gerst á yngri árum)
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
(x) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
(x) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
(x) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á snjóskíði
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik"
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
( ) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi (alveg örugglega..isss..)
(x) fengið deja vu
( ) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (erekkilagi?)
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
( ) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
(x) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem mér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý (hver hefur það ekki á Ísó hehe)
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) fengið ósk mína uppfyllta
( ) farið í fallhlífastökk (það er draumurinn…)
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti

Posted by: Sandra @ 21:53

sunnudagur, mars 12, 2006  

Greyið danir... Þeir eru ekkert smá pirraðir út í Íslendinga núna, enda eru Jón Ásgeir og félagar alveg að missa sig þessa dagana. Það er gaman að lesa fréttir af kaupum Íslendinga hér í blöðunum þar sem yfirssagnirnar eru oft á þessa leið: Islændinge køber op igen. Las svo í einni fréttinni þetta: Stribevis af danske virksomheder er efterhånden overtaget af islændinge. Hvorfor gør de det, og hvad er det, de kan?

Já þetta er ansi erfitt fyrir þá...

Posted by: Sandra @ 15:26

laugardagur, mars 11, 2006  

Ég held að pabbi hafi haft rétt fyrir sér með að kalla mig alltaf jólasvein þegar ég var yngri!! Mér tókst næstum því að kveikja í íbúðinni í fyrradag :/ Ég fór með Alexander í skólann og kom svo heim þar sem að það var engin skóli hjá mér þann dag. Ég hafði ákveðið að lesa heima í stað þess að fara á bókasafnið. Þegar ég kom heim langaði mér svo í egg ofan á brauð. Ég er með pottaleppa á hellunum sem eru úr efni. Í einhverju fljótfærniskasti kveiki ég á vitlausri hellu og tek ekki pottaleppana af. Svo fer ég inní herbergi og er dálítinn tíma þar. Eftir smá stund tekur Orri eftir einhverri brunalykt. Ég fer fram og þá er þvílíkur grár mökkur í stofunni og pottaleppinn orðinn alveg svartur. Sem betur fer var ekki allt orðið brunnið af pottaleppanum þannig að ég náði að taka í endann og henda honum í vaskinn og hella vatni yfir logann. Þvílík ógeðislykt hef ég aldrei fundið áður...Mökkurinn var svo mikill að við gátum ekki verið inní íbúðinni. Manni sveið í vélindanu og við hóstuðum og hóstuðum...ógeðslegt!! Við höfðum svo alla gluggana opna í 5 tíma og það í brálæðislegum kulda...brrr...ég var gjörsamlega að frjósa!! undir tveimur sængum að lesa með kalt nef og kalda fingur hehe..og lyktin er ekki enn farin! Hún er ekkert smá sterk. Ég er búin að vera með kveikt á ilmkertum en ekkert virkar. Núna ætla ég að taka allt í gegn. Eldhúsinnréttingin verður þrifin hátt og lágt þar sem að það er mesta lyktin af henni...

Skrítið að þetta skildi gerast í fyrradag. Því að deginum áður var ég að tala við Orra um að það hefðu Íslendingar lent í bruna hér í Köben deginum áður og þá var það reykskynjarinn sem bjargaði þeim. Ég var að segja við hann að ég þyrfti að fara að ath hvort að reykskynjarinn minn virkaði þar sem að það var svo langt síðan ég hafði tékkað á því. Það fór ekki á milli mála að hann virkaði ekki þegar þetta gerðist!! ég fór því strax að kaupa nýtt batteríi svo að hann er í lagi núna!! þetta er ekkert smá fljótt að gerast...

Posted by: Sandra @ 12:47

þriðjudagur, mars 07, 2006  

Kannski kominn tími á smá blogg..Ég vissi svosem alveg að þetta yrði ekki löng pása, ef það má kalla þetta pásu...

Lífið gengur sinn vanagang hérna á Dalslandsgade. Þessa dagana heldur maður sig bara innandyra útaf kuldanum og snjónum..alveg ömurlegt...

Ég er að vinna í umsóknarferlinu í sambandi við annað nám. Já..ég er búin að ákveða að hætta í lyfjafræðinni fyrir þá sem ekki vita það!! Ég er bara löngu búin að komast að því að hún er ekki fyrir mig. Tók mig alveg þokkalega langan tíma að átta mig á því, en sem betur fer er ég búin að sjá þetta þannig að það er ekki spurning að stefna á eitthvað annað. Ég er búinn að vera að hugsa um að skipta yfir í tannlækninn og ætla ég að prófa að sækja um hann. Ég fór á kynningarfund um daginn og leist bara mjög vel á það nám. Ég get fengið eitthvað af þeim fögum sem ég er búin með í lyfjafræðinni metin yfir í tannsann. En það þarf auðvitað fyrst að komast inn og er það frekar erfitt. Í fyrra sóttu 745 um og komust aðeins 107 inn!! 20% af þeim voru umsóknir í gegnum kvóta 2. Ég verð að sækja um í kvóta 2 þar sem að ég er útlendingur...Þetta eru skelfilegar tölur..en vonandi verð ég ein af þessum 20% sem komast inn...hef einhvernveginn ekki mikla trú á því þar sem þessar tölur eru alveg rosalegar..En maður vonar það besta.....

Annars áttum við góða helgi. Á föstudeginum eftir fyrirlestrana skellti ég mér með Erlu, sem er skiptinemi hérna í lyfjafræðinni, á Laundromat..hvað annað. Fengum okkur brunch sem var algjör snilld!! Um kvöldið fórum við kallinn svo út að borða á kínverskum veitingarstað. Ágætis staður og fínn matur. Á laugardeginum tókum við smá leti á þetta, en rifum okkur á fætur og fórum að stússast í matreiðslunni því við vorum búin að bjóða Hörpu og Árna í mat til okkar um kvöldið. Við vorum með aspas vafin í skinku með dijon sinnepi og rucola í forrétt. Önd með perum, grænmeti og karteflugratíni í aðallrétt og svo heimalagaðann toblerone ís í eftirrétt. Við hjónin fórum létt með þetta og heppaðist þetta mjög vel. Á sunnudeginum vorum við ótrúlega hress miðað við áfengismagnið sem var drukkið kvöldið áður..neeeei..það var ekki svo slæmt, vorum allavega hress á sunnudeginum. Dagurinn var nýttur í lærdóm og þvott..Um kvöldið var svo frænka hans Orra búin að bjóða okkur í heimsókn. Við redduðum pössun sem var ekkert mál þannig að við fórum bara tvö. Ekki skynsamlegt að taka litla kall með þar sem að það var skóli daginn eftir hjá guttanum.

Í kvöld ætlum við hinsvegar að leyfa honum að koma með okkur á handboltaleik með FC Guðrúnu á móti liði sem ég held að heiti Stadium...er samt ekki viss...

Jæja..þetta er orðið gott..ætla að fara að gera eitthvað af viti...

Posted by: Sandra @ 14:57

miðvikudagur, mars 01, 2006  

Ég er orðin svo þreytt á þessu veðri. Þessi kuldi er alveg að fara með mann. Dagurinn byrjaði nú ekki vel því þegar við vöknuðum í morgun var hvítt yfir öllu..arrgg..er þetta ekki komið gott!!
Sem betur fer er komin mars, þannig að það styttist óðum í vorið...

En að öðru..Það er ekki ennþá komið út úr myndatökunni hjá Alexander. Við eigum að fá svar á morgun þannig að við krossleggjum fingur...

Mamma og pabbi eru á skíðum í Aspen þessa stundina. Ég væri nú ekki á móti því að skipta við þau. Ekki slæmt að vera bara á skíðum alla daga, slappa svo af á kvöldin og fara í pottinn...*maðurmáalveglátasigdreyma*

Annars hef voða lítið að segja þessa dagana. Held ég sleppi því að blogga þangað til að andinn hefur komið yfir mig aftur.....

Posted by: Sandra @ 22:10
 



Hafðu samband:

Sendu mér póst


Bloggarar:

Orri
Silla
Inda
Halla
Matti
Karen
Heiða
Lísbet
Gullan
Dúnna
Sunna
Sammi
Gúrkan
Thelma
Sæunn
Kolbrún
Aprí­l Eik
Háli Slick
Jóhanna
Helga Sif
Elín Marta
Bloggari.is
Aldí­s Marí­a
Þórey Ösp
Sigga Birna
Forystugeitin
Helga Sigríður
Gunnar Pétur
Harpa og Árni
Erna og Bjarni
Harpa Halldórs
Karen Konfekt
Ö–ssi og félagar
Gústi og Hrefna
Hildur og Halldór
Sæunn og Denni
Anna Lísa frænka
Gardentown Girls
Árgangurinn minn


Smáfólkið:

Börnin
Dagur
Anna Sól
Lucas Már
Noel Darri
Róbert Örn
María Kristín
Rúben Breki
Bjarki Kröyer
Ágústa María
Bryndí­s Hekla
Eysteinn Ernir
Arnar Ebenezer
Dagbjört Stjarna
Ragnheiður Elí­sabet
Ungi Huldu og Kristins
Sveina Rósa og Brynja
Rakel Mist og Vilhelm Ari
Svava Rún og Elma Katrí­n
Kristófer Karl og Júlía Marín
Róbert Arnar og Victor Aron
Victor Andri og Margrét Ásta
Sara Emily og Hörður Christian


Ýmislegt á IS:

Mbl
Leit.is
Femin
Skype
Tilveran
Batman
Húmor.is
Betra.net
Spámaður
Friendster
Íslendingabók
Vantar þig far?
Land barnanna
Útivistaparadí­sin
Fréttir frá Ísafirði
Webcam á Ísafirði


Ýmislegt í­ DK:

Fréttir í­ DK
Gulu síðurnar
Stúdentafélagið
íslendingafélagið
Kort yfir Danmörk
Miðasala á tónleika
Samgöngur í Danmörku
Allt um Kaupmannahöfn
Ferðaplan fyrir Danmörk
Webcam í­ Kaupmannahöfn
Upplýsingasíða um Danaveldi


Skrifaðu í gestabókina

MYNDAALBÚ™M 1

MYNDAALBÚM 2

MYNDAALBÚ™M 3

MYNDAALBÚ™M 4