--> [ Lífið í Køben ]

 [ Lífið í Køben ]

 
 



mánudagur, nóvember 29, 2004  

Þá erum við komin aftur heim eftir frábæra helgi hjá Sillu og Hans.
Við komum um eittleytið á laugardeginum og tók Silla á móti okkur á lestarstöðinni. Við byrjuðum á því að kíkja heim til hennar með dótið og svo kíktum við aðeins í bæinn. Ég verð nú að segja fyrir mína hálfu að mér finnst Odense mjög krúttlegur og flottur bær. Allt er svo gamaldags og svo margar litlar götur með allskonar litlum sætu búðum...
Eftir að hafa labbað aðeins um bæinn fórum við heim. Þar var eldaður dýrindis matur og drukkið gott rauðvín með. Það var kannski aðeins of mikið drukkið um kvöldið þar sem að maður fékk svolítið að finna fyrir því í gær :/ En við létum það ekkert stoppa okkur og fórum aftur í bæinn (þ.e.a.s við Silla því Hans greyið var miklu slappari en við). Þegar við vorum komin í bæinn langaði okkur svo mikið í makkara. Silla vissi ekki hvar hann væri þannig að við hringdum bara í símaskránna, svo mikil var þörfin fyrir þynnkuhamborgara hehehe...
Eftir að hafað gætt sér á hamborgaranum fórum við á Íslensk kaffihús þarna í bænum. Rosa hippalegt kaffihús, húsgögnin voru öll gamaldags og gat maður keypt allt það sem var þarna inni. Svo gat maður setið á dýnum á gólfinu og spilað á gítar. Eigandinn sem var að sjálfsögðu Íslendingur var (örugglega fimmtugur) alskeggjaður hippi í lopapeysu með hringlótt gleraugu. Frekar fyndinn gaur :)
Okkur fannst samt mjög fínt að koma þarna því það var allt öðruvísi stemning heldur en það er á flestum kaffihúsum. Svo á einni hillunni var brotinn eldgamall rammi með mynd af kind sem að fyrir neðan stóð Icelandic sheep hehe...Ekkert smá fyndið.
Alexander sá bongótrommur sem honum langaði í og það var auðvitað tuðað soldið en ég gaf mig ekki, var ekki að nenna að draga hana með í lestina.

Svo komum við heim í gærkvöldi, ég alveg búin á því og Alexander eiginlega líka. Þannig að við fórum bara beint að sofa.

Silla og Hans!! Takk fyrir frábæra helgi!! :)

Posted by: Sandra @ 08:47

fimmtudagur, nóvember 25, 2004  

Það er búið að vera brjálað að gera undanfarna daga, er varla að trúa því að það sé föstudagur á morgun. Svo er ég búin að vera e-ð pirruð undanfarið. Veðrið er leiðinlegt, dimmir alltof snemma þannig að maður er frekar þungur þessa dagana :/

Annars erum við Alexander að fara til Sillu um helgina, hlakka bara ansi mikið til að fara :) Hefði samt ekkert á móti því að taka þessari helgi rólega þar sem að ég er svo þreytt eftir vikuna, en það verður örugglega rosa gaman hjá Sillu, það er nú svo sjaldan sem maður fer eitthvað þannig að mér finnst að við mæðginin eigum þetta alveg inni ;)

Nýjasta nýtt er svo að ég var á foreldrafundi í dag, get alveg sagt það að ég er nokkuð ánægð með útkomuna, var búin að undirbúa mig undir að þær myndu segja eitthvað slæmt, en það var greinilegt að það var algjör óþarfi :) Þær sögðu meira að segja að hann væri yfir meðallagi í þroska og að hann væri svo rosalega músikalskur að ég bara yrði að reyna að koma honum í músikskóla. Ég er nú búin að vera að reyna það en því miður verður hann að vera orðinn 7 ára, þannig að um leið og að hann verður orðinn sjö þá verður hann skráður. Honum langar mest að læra á trommur, kemur kannski ekki á óvart, en það getur hann fyrsta lagi gert þegar hann er orðinn 8 eða 9 ára(man ekki alveg hvort það er). Mér finnst það nú frekar lélegt ef ég á að segja eins og er, en svona er þetta nú....

Posted by: Sandra @ 18:12

þriðjudagur, nóvember 23, 2004  

Ég er roslega þreytt í dag. Hef alveg nóg að segja á blogginu, bara nenni ekki að skrifa neitt núna. Sofnaði meira að segja á sófanum þegar ég kom heim...iss hefði alveg getað notað þann tíma í lærdóm (úff..samviskubit)...

Posted by: Sandra @ 17:30

sunnudagur, nóvember 21, 2004  

Rosalega finnst mér Sunnudagar vera leiðinlegir. Maður er eitthvað svo latur og nennir engu :/ Ég er eiginlega bara búin að vera heima í allan dag. Sigga kom og sótti Alexander og fór með hann í barnaafmæli hjá vinkonu sinni. Ég var ekki beint að nenna því þannig að ég var bara heima og reyndi að læra eitthvað, en það gekk nú alls ekki vel :( úff..nú verð ég að fara að taka mig á. Það fer að styttast í prófin!!

Annars notuðum við Alexander gærdaginn vel. Vöknuðum snemma, settum í þvottavélar,þrifum íbúðina og fórum í Jónshús. Það var ógeðslegt slabb úti og á ég ekki beint góða vetrar skó þannig að ég varð alveg rennandi blaut í fæturnar. Ég var eitthvað að reyna að þrjóskast við en svo gafst ég upp þannig að ég skellti mér í skóbúð og splæsti á mig stígvélum :) Var rosa ánægð með kaupin þó að buddan hafi ekki beint verið sátt (er hún það einhvern tímann hehe). Eftir þessi frábæru kaup fórum við í Jónshús, þar sem haldin var jólamarkaður. Þar var hægt að kaupa Íslensk nammi, malt, appelsín og nóa konfekt. Auðvitað voru keyptar birgðir af þessu öllu saman. Við stoppuðum stutt því það var svo troðfullt þarna, þannig að við ákváðum bara að fara heim. Kíktum svo í heimsókn til Eyrúnar og Birtu. Þar var kjaftað þangað til að ég fattaði að klukkan var orðin átta. Þá drifum við okkur heim og ég eldaði matinn. Kvöldinu var svo eytt í rólegheitunum yfir imbanum. Að sjálfsögðu gæddum við okkur á Íslenska varningum sem smakkaðist að venju mjög vel :) Íslenskt klikkar ekki!!

Annars eiga Sæunn og Dagur Emil afmæli í dag, til hamingju með afmælið!! :)


Posted by: Sandra @ 22:38

laugardagur, nóvember 20, 2004  

Það er snjór úti!!!

Posted by: Sandra @ 10:41

föstudagur, nóvember 19, 2004  

Ég er alveg bakarasjúk þessa dagana, í dag bakaði ég dýrindis snúða, mmm..þeir voru ekkert smá góðir. Nema hvað að ég hef ekki mikla lyst til að borða þá heldur finnst mér bara svo gaman að baka :) Síðasta mánudag bakaði ég svo súkkulaðibitakökur, það var heldur ekki mikil lyst fyrir þeim þá þar sem að ég á ennþá slatta eftir af þeim. En eins og ég sagði þá er ég bakarasjúk ;)



Posted by: Sandra @ 16:26  

Var að tala við Sillu rétt í þessu, og viti menn hún reddaði þessu með tungumálið, takk Silla reddari!! :) Annars var ég að bera það undir hana hvort að ég mætti koma í heimsókn til hennar og komumst við að niðurstöðu að laugard.27 nóv hentar best þannig að núna erum við Alexander á leiðinni til Odense!! Mig er bara farið að hlakka strax til :) Ætlum að stoppa yfir eina nótt og ætlar Silla að túristast með okkur um alla Odense :)

Posted by: Sandra @ 13:48  

Sá thetta inn á einni uppskriftarsídunni hehe...

Thinnkusvali
Drykkir
Einstaklega einfaldur og seidandi thinnkudrykkur vid allra hæfi.


Nýmjólk

Nesquik kokomjolkarduft

Hellid nymjolk i glas ( stærd eftir thinnku og thorfum).Setjid 2 tsk. nesquik koko duft i og hrærid thar til drykkurinn verdur jafn mettur.Fordast skal ad setja duftid a undan mjold thar sem ad tha er meiri moguleiki aad drykkurinn verdi thræl kekkjottur, og thar med ekki jafn girnilegur...
Sendandi: Jonas M. G
17/11/1997
Einkunn : 3,0 stjörnur. Gefðu einkunn:
_1_ _2_ _3_ _4_ _5_ stjörnur.

Posted by: Sandra @ 11:55  

OH....ég get ekki opnad póstinn minn hjá hotmail, ekki skodad komment á heimasídum, ekki stækkad myndir inn á bb.is og ekki skipt lyklabordinu yfir í Íslenskt!! Getur einhver hjálpad mér?

Posted by: Sandra @ 10:56

fimmtudagur, nóvember 18, 2004  

Jæja ég er búin ad vera ad fikta e-d i tölvunni og einhvern veginn klúdradi ég einhverju sem kann ekki ad laga aftur hehe..engin tölvunörd. Thess vegna tharf ég ad skrifa med danskt lyklabord allavega thangad til ad ég er búin ad finna út úr thessu.

Já helgin sídasta...Vid Sigga fórum saman í afmælid sem var mjög gaman. Nema hvad ad vid vorum svona rosalega vinsælar og gerdi karlpeningurinn ekki annad en ad reyna vid okkur. Ég verd nú bara ad segja thad ad ég hef aldrei lent í ödru eins... Vid vorum lang yngstar og thess vegna held ég thad hafi verid ástædan fyrir thvi afhverju vid vorum svona eftirsóttar. Audvitad átti enginn möguleika í mig thar sem ad hugurinn minn er allur hjá honum Orra mínum :) En annad get ég nú sagt um hana Siggu hehe...pass. En í sambandi vid færsluna sem ég skrifadi thegar ég kom heim, thá sagdi einn gaurinn e-d vid mig sem ég man ekki núna hvad var, ég er greinilega ordin soldid gleymin, hehe gamla konan. En thad var greinilega e-d ósmekklegt thví mér ofbaud gjörsamlega thví Sigga spurdi mig á sunnudeginum hvad gaurinn hefdi sagt, thví mér langadi bara ad fara eftir ad hafa talad vid hann. Fyndid ad ég skuli ekki muna thetta, en thetta hefur varla verid thad rosalegt víst ég man ekki hvad thad var.

Svo á Sunnudeginum fórum vid Alexander med Eyrúnu og Birtu í bíó á De Utrolige eda eins og hún heitir á ensku The Incredibles. Ég mæli eindregid med henni, mjög skemmtileg mynd og flott grafík. Minnir svolítid á Shrek húmorinn, alveg ekta fjölskyldumynd.

Á mánudeginum fór ég svo í heimsókn í sveitina til hans Orra. Thetta er sannköllud sveit thví hann býr svo langt í burtu, thad tekur nánast klukkutíma ad fara thangad med strætó!! Eyrún passadi fyrir mig thannig ad audvitad skellti ég mér í heimsókn. Thad var mjög gaman ad geta farid í heimsókn til hans thví hann kemur alltaf til okkar útaf Alexander. Mér finnst híbýli manns segja ansi margt um manneskjuna. Ég var allavega sátt vid útkomuna ;)

Svo er madur bara búin ad vera svo bissy thannig ad thad hefur ekki getad gefst neinn tími til ad bladra. Núna er ég svo veik thannig ad ég er heima :( ætla ad hætta ad kjafta núna og reyna ad fara ad lesa e-d í dynamisk biokemi.

Posted by: Sandra @ 13:47  

Spáid í thví ad eftir mánud verd ég komin hingad!! Fallegasti bærinn á Íslandi :)



Posted by: Sandra @ 13:25  

Undanfarna daga hef ég engan vegin haft tíma til ad skrifa inn á bloggid. En núna er ég veik thannig ad ég ætti ad geta skrifad nokkrar línur nidur á eftir, en fyrst ætla ég ad leggja mig....zzzz

Posted by: Sandra @ 09:21

sunnudagur, nóvember 14, 2004  

Djö..karlmenn..sorry ekkert ílla meint, en vá hvað sumir þeirra reyna við allt sem hreyfist!!!

Posted by: Sandra @ 05:24

laugardagur, nóvember 13, 2004  

Dagurinn í dag hefur verið frábær. Við Alexander skelltum okkur á leikpláss hérna í hverfinu okkar. Þar voru teknar fullt af myndum. Eftir góða stund á legepladsen fórum við í tívolíið. Ég gerði auðvitað ekkert annað en að taka myndir af greyið krakkanum sem var orðin frekar þreyttur í restina á öllu þessu myndastussi hehe...
Hérna er ein mynd af dúllunni minni. Setti líka fullt af myndum inn á barnaland fyrir þá sem vilja skoða fleiri myndir af stjörnunni...




En í kvöld er ég svo að fara í afmæli til Esbens (daninn sem ég bjó hjá í nokkra mánuði). Hann sagði mér að ég mætti taka einhverjar vinkonur mínar með mér þannig að ég bað Siggu um að koma með. Frekar óþægilegt að fara ein því ég á ekki eftir að þekkja neinn þarna, þannig að það verður fínt að taka hana með. En áður en að klukkan verður of margt ætla ég að skella mér í ljós :)

Posted by: Sandra @ 18:02  

Ótrúlegt en satt svaf ég ekkert smá vel í nótt :) Maður getur verið soldið ímyndunarveikur. Sem betur fer er ég ekkert næm á svona hluti því það gæti ég aldrei... En að öðrum málum. Þar sem að ég vaknaði svona hress ætla ég að skella mér í tívolíið með Alexander og taka fullt af myndum af gæjanum. Verð víst að fara að drífa jólamyndina af í ár, má ekki svíkjast undan enn einu sinni. Hef nefnilega ekki sent jólamynd af barninu síðustu tvö jól :/ En núna hef ég enga afsökun og ætla bara að drífa í þessu.

Áður en við förum langar mig að deila með ykkur hvað sonur minn er enn og aftur mikið krútt hehe..Þegar ég sótti hann á fritids í gær var hann að dansa uppi á palli. Þeir eru með dansaðstöðu á einni hæðinni. Maður er orðin ansi vanur að sjá hann vera að troða upp því hann er alveg sjúkur í það grallarinn hehe. En tónlistin sem hann valdi fannst mér frekar fyndin. Hann var að dansa við lagið Roses með Outkast. Þetta lag var ég að djamma við í sumar og núna er sonur minn farinn að dýrka þetta lag hehe...Nema hvað að hann syngur ekki Caroline heldur Gemmelej, en það þýðir feluleikur á Íslensku. Það er alveg sama hvað ég rétti hann oft alltaf segir hann gemmelej í staðinn hehe...Mér fannst þetta svo fyndið.

Posted by: Sandra @ 10:46  

Í nótt verð ég bara ein í kotinu :( Alexander vildi endilega gista hjá Birtu sem býr á fjórðu. Það var eiginlega ekki hægt að neita honum þar sem að það er nú einu sinni helgi þannig að hann fékk leyfi til að gista. Ég er nú reyndar ekkert voða hress með að vera hérna ein þar sem að Eyrún var að segja mér skemmtilega sögu frá kollegíinu. Í vor voru hún og kærastinn hennar niðri á pizzastaðnum að kaupa pizzu þegar þau sjá að það er einhver að taka viðtal við konu. Þau fara að forvitnast hvað væri í gangi og komast að því að þau væru að búa til sjónvarpsþátt sem átti að fjalla um draugaganginn á kollegíinu. Í framhaldi af þessu fengu þau að vita að fyrir tíma Øresundskollegísins hafi fólk verið tekið af lífi hérna og að núna séu ennþá einhverjir hérna...búúúhuu...Þetta vildi ég ekki fá að vita!! Ég trúi nebbla alveg á þetta. Svo var ég að lesa blogg hjá einni nágrannakonunni og þar var hún að tala um svo mikinn draugagang í íbúðinni sinni. Ég var nú ekki mikið að taka mark á þessu en núna er ég aldeilis búin að skipta um skoðun.... Hún sagði nákvæmlega þetta:

Draugasaga
3. nóvember 2004 - 18:05
Það nýjasta nýtt er það að það býr draugur í íbúðinni minni. Ég sá hann með berum augum í gærkveldi. Ég var nýbúin að leggjast upp í rúm og ætlaði að fara að sofa en þá heyrði ég eins og einhver væri sífellt að dæsa inni í stofu....frekar óhuggulegt. Ég var ein heima með Ísak og frekar skelkuð en ákvað að nú yrði ég að vera hetja og fara inn í stofu og athuga hvað gengi nú á. Ég með mitt litla hjarta held af stað inn í stofuna og þegar ég kom hérna þá stendur maður á miðju stofugólfinu, í einkennisbúning (ekki viss hvernig samt) og ég vissi strax að þetta var ekki neinn innbrotsþjófur því hann var svona hálfgegnsær. Ég gat ekki hreyft mig en draugurinn horfði bara beint á mig með rosalega sorgmæddum augum, svo benti hann upp í loftið og hvarf....Allt í einu hvarf öll hræðsla og ég fór að sofa. Já það býr draugur hérna í íbúðinni hjá mér og ég er spennt að vita hvenær hann heimsækir mig næst.


Oj...ekki hefði ég verið viljað að vera í hennar sporum!! Mér finnst hún samt ótrúlega róleg yfir þessu, ég gæti hinsvegar aldrei verið svona róleg. Myndi deyja úr hræðslu!!

Posted by: Sandra @ 01:32

föstudagur, nóvember 12, 2004  

Í morgun fór ég með Alexander til eyrnalæknis. Hann fór um daginn í skoðun í skólanum og kom tilbaka með bréf þar sem í stóð að ég ætti að fara með hann til eyrnalæknis sem fyrst því heyrnin er svo slæm hægra megin. Þetta voru reyndar ekki nýjar fréttir þar sem að það var búið að uppgötva þetta í fyrra á Íslandi. En þeir heima töluðu ekkert um að það ætti að skoða þetta betur. Það er ekki vitað afhverju hann heyrir svona ílla, en þeir halda að hann hafi annaðhvort erft það frá mér (heyri ílla vinstra megin) eða þá að þetta hafi komið eftir bílslysið (hann fékk höggið hægra megin). Ég hef greinilega ekki gert mér grein fyrir því hversu lélega heyrn barnið hefur, því þegar læknirinn var búinn að skoða hann í morgun sagði hann að það þyrfti að skoða hann enn betur. Þannig að núna erum við að bíða eftir bréfi frá einhverri heyrnarklinik sem að ætlar að gefa okkur tíma til að kanna hvort að barnið þurfi á heyrnartæki að halda!!! Púff :(

Posted by: Sandra @ 18:22

fimmtudagur, nóvember 11, 2004  

Loksins er ég búin að panta flugfar aftur heim til Dk. Ég fer sem sagt 2 jan. aftur út. Þannig að ég rétt næ að taka fyrri vélina frá Ísafirði, en hún lendir klukkan tvö og svo á ég flug klukkan fimm til Dk. Ég ákvað að vera soldið sniðug og panta eins snemma og hægt væri því ég er að fara í fyrsta prófið mitt 6 jan og ef ég þekki mig rétt verður erfitt að vera heima í dekrinu og að vera að læra. Þannig að ég held að þetta sé best... Er orðin nokkuð spennt fyrir því að koma heim ;)

Posted by: Sandra @ 19:17  

Í morgun fengum við Alexander sitthvort bréfið frá Tívolíinu. Það er að opna aftur á morgun og vorum við að fá tilboð um að gerast áskrifendur aftur næsta ár. Bréfið mitt var stílað á mig en í bréfinu hans Alexanders stóð Kære familien Birgisson hehe...Húsbóndinn á heimilinu :)

Posted by: Sandra @ 14:54

þriðjudagur, nóvember 09, 2004  

Ég veit að þetta er frekar fáranleg spurning en maður verður nú að plana fram í tímann. Ég var að spá hvort að þið vitið um einhvern sem er að fara til Ísafjarðar laugardaginn 18 desember? Við Alexander komum til Íslands á föstudeginum og var ég að spá í að senda hann vestur á laugardeginum. Ég þarf nefnilega að stoppa í borginni fram á Þriðjudag því ég þarf að fara til læknis bæði á mán og þri. Var að tala við mömmu áðan og stakk hún upp á því að senda hann fyrr. Öllum fyrir vestan langar auðvitað að fá hann sem fyrst, sem er skiljanlegt. En allavega var ég að spá hvort að ég mætti panta far með einhverjum sem væri að fara þennan dag því það er miklu ódýrara. Flugfélagið er nefnilega svo sniðugt (alltaf að græða) að það er ekki hægt að panta bara fyrir börn á netinu, helduru verður maður að panta fullorðinn með. Og svo munar ansi miklu held ég (allavega var það síðast) að panta í gegnum símann og í gegnum netið þannig að ef þið vilduð vera svo góð að hafa þetta bak við eyrun fyrir mig yrði ég mjög þakklát ;)

Posted by: Sandra @ 21:32  

Brr..nú er orðið vel kalt úti. Ég finn verulega fyrir því á hjólinu, þar sem að lærin fá vel að finna fyrir því hehe... Eftir að hafa hjólað í skólann í gær náði ég ekki hlýja mér eftir að ég kom inn heldur var mér kalt allan daginn :/ manni langar helst til þess að halda sig innandyra þegar veðrið er svona...

Annars upplifði ég hrikalegt kvöld í gær. Ég fer alltaf í Aerobik hérna á kollegíinu klukkan fimm á mánud. og miðvikudögum. Alexander hefur nokkrum sinnum verið heima á meðan enda er þessi aerobik tími ekki nema klukkutími. Nema hvað í gær spyr ég hann hvort að hann yrði ekki bara heima á meðan ég væri í burtu. Hann sagðist ætla að gera það þannig að af einhverjum óskiljanlegum ástæðum ákvað ég að sleppa því að taka lyklana mína með og skyldi þá eftir á eldhúsborðinu. Svo þegar aerobik tíminn er búinn (klukkan sex) kem ég upp og eru þá ekki dyrnar læstar og enginn Alexander heima. Ég sest því á ganginn og ákvað að bíða eftir honum, því ég hélt að hann færi nú að koma heim þar sem að hann vissi að ég væri ekki með lykla. Ég bið þangað til að klukkan er orðin tuttugu mín í átta, þá ákvað ég að fara og leita af honum. Ég fer á alla staði sem mér dettur í hug. Til allra vina hans en enginn hafði séð hann. Þetta fannst mér mjög skrítið þar sem að hann fer alltaf á sömu staðina og lætur alltaf vita af sér. Í millitíðinni er ég alltaf að koma aftur heim og ath hvort að hann væri nokkuð kominn heim. Þegar klukkan er orðin átta fer ég niður til Eyrúnar (nágranni minn). Alexander leikur nánast á hverjum degi við dóttur hennar Birtu. Þær voru þá nýkomnar heim úr Balletttíma og höfðu þær ekkert séð hann. Þá fyrst fór ég að panikka og ímyndaði mér allra verstu hluti. Ég hafði bannað honum að vera úti eftir fimm á daginn þar sem að þá er orðið svo dimmt en ég hugsaði með mér ansk...hann hefur farið út og einhver hefur rænt honum!!! ég var komin í algjört panikk...Nema hvað að ég fer í gulu blokkirnar (þær eru við hliðina á kollegíinu), þar búa mjög margir krakkar sem Alexander þekkir. Þessar blokkir eru held ég átta og eru fjórir stigagangar og 16 íbúðir í hverjum stigagangi, frekar stórar. Ég ákvað samt að dingla öllum bjöllunum, kynna mig og segja að ég væri að leita af syni mínum og spurði hvort að það sé möguleiki á að sonur minn sem héti Alexander skyldi vera hjá þeim. Þar fékk ég ekkert nema neikvæð svör. Og þegar ein manneskjan spurði mig hvort að ég hafði hringt á lögguna missti ég mig alveg og fór að hágráta. Ég hugaði með mér að ef hann væri ekki fundinn klukkan hálf tíu myndi ég hringja í lögguna. Ég fer aftur til Eyrúnar og hún kemur með mér út að leita. Við leitum og leitum og finnum ekkert. Þegar klukkan er orðin níu ákváðum við að fara aftur á kollegíið. Þegar við komum inn ganginn sé ég glókollinn minn. Þá var hann að labba heim með mömmu hans Felix (strákur sem Alexander var með á leikskóla). Þá hafði hann verið allan tímann heima hjá honum en hafði farið nokkrum sinnum að ath hvort að ég væri komin heim. Þau skyldu ekkert hvar ég væri og hafði Alexander gleymt því að ég væri ekki með neina lykla. Einhvern veginn datt mér ekki í hug að hann væri þarna þar sem að hann leikur mjög sjaldan við Felix. En ég hugsaði auðvitað ekki rökrétt þar sem að ég var gjörsamlega að missa mig á þessum tímapunti og hausinn á mér snérist bara í hringi. Alexander var auðvitað mjög miður sín þar sem að hann sá að ég bara grét og gat varla talað þegar ég sá hann. Púff...þetta var hræðilegt. Þetta mun aldrei aftur koma fyrir. Þegar ég var að bíða eftir honum á ganginum var ég alveg búin að ákveða að straffa hann þar sem að ég hélt að hann hefði farið út í myrkrið en svo þegar ég sá hann eftir allan þennan tíma gat ég engan veginn skammað hann. Heldur töluðum við um þetta þegar við komum heim og þar sem að ég er búin að róa mig niður núna ætlum við að tala betur um þetta í dag. Púff..maður er samt varla búinn að ná sér. Ég held bara að ég hafi aldrei verið svona hrædd áður. Eða jú, einu sinni áður, þegar hann lenti í bílslysinu. Ótrúlegt hvað maður panikkar..En samt alveg skiljanlega eftir að hafa leitað í svona langan tíma. Þetta var hrikaleg tilfinning...

Posted by: Sandra @ 08:41

sunnudagur, nóvember 07, 2004  

Þá er enn einn dagurinn búinn að nýtast í þynnku :( en það var nú samt alveg þess virði ;) Það var mjög gaman í gær. Mætti um hálf átta til Rikke. Þar var gætt sér á ljúffengum mat, drukkið og spilað fram eftir miðnætti. Þá var farið í þetta líka risastóra partý hjá Maj. Ég hef bara farið i svona rosalegt partý áður. Þarna búa 6 manneskjur i kæmpe stóru húsi, held að það sé eitthvað um 260 fermetra. Mikið um langa ganga og fullt af herbergjum. Það voru 3 plötusnúðar að spila í sitthvorum stofunum, 2 barir og hoppukastali inni í einu herberginu hehe...ekkert smá fyndið. Ég og Martin skelltum okkur að sjálfsögðu í hoppukastalann og létum eins og asnar. Eini gallinn við þetta partý var að það var svo stappað að það var frekar óþægilegt að vera þarna þannig að við fórum heim til Anders (bekkjarbróðir minn), en hann á heima ská á móti þessu húsi. Þar var gætt sér á samlokum og kjaftað. Sigga var eitthvað að reyna að fá mig á Mexibar (geðveikur koktleillbar) en ég var ekki alveg í gírnum lengur þannig að ég ákvað að fara heim. Var komin svo um fjögur heim, sem er nú frekar lítið miðað við venjulega. En ég er mjög sátt við að hafa farið svona snemma heim því annars hefði heilsan verið enn verri í dag púff..og ekki mátti við því!! Pössunin heppnaðist meira að segja vel, þó að Alexander hafi auðvitað reynt margt til þess að fá að vaka lengur hehe...En allt í allt var þetta kvöld mjög vel heppað :)
Ég ætla að skella inn nokkrum myndum frá gærkvöldinu....


Eins og sjá má voru fyrstu tvær teknar í byrjun kvöldsins.









Sjöan spiluð (drykkjuspil er það sem danir gera mikið af á djamminu)




Martin og ég.




Ég, Malene og Rikke gestgjafinn.





Posted by: Sandra @ 22:03

laugardagur, nóvember 06, 2004  

Jæja þá er ég búin að redda pössun. Ég var alveg búin að ákveða að hætta við að fara en þá bauðst Orri til að passa...já skrítið?!? það fannst mér, en afhverju ekki... Hann ætlar að elda mat fyrir Alexander í kvöld þar sem að ég fer um hálfsjö. Á reyndar eftir að tala við guttan, en hann á mjög sennilega eftir að samþykkja þetta. Honum finnst Orri rosa skemmtilegur þannig að þetta ætti ekki að vera vandamál ;)

Annars hlakkar mig mjög mikið til að fara á djammið. Það var J dagur í gær (þá kemur jólabjórinn í búðir) og að sjálfsögðu fóru allir á fredagsbar í skólanum. Það er þannig í skólanum mínum að á J deginum klukkan 13:45 er byrjað að gefa bjór!! jamm það eru nokkrir kassar fríir í boði Carlsberg, þannig að það myndast alltaf rosa röð. Ég fór ekki í fyrra og heldur ekki í gær :( Langaði samt svo að fara í gær, en það verður bara að bíða þangað til á næsta ári :)

En jæja ætla að fara að læra og hætta þessu bulli....


Posted by: Sandra @ 11:55

fimmtudagur, nóvember 04, 2004  

Ég er nú bara enganveginn búin að jafna mig eftir helgina...Er ennþá að leka niður. Þessi vika hefur verið frekar erfið líka þannig að það er kannski ekki skrítið. Ég og Kirstine vorum að gera skýrslu í fysisk kemi áðan og ég gat engan veginn hugsað, var bara algjörlega að leka niður :( Þannig að nú er ég komin heim og ætla að leggja mig þangað til að ég þarf að fara að sækja guttann...

Annars lítur allt út fyrir að komandi helgi verði skemmtileg. Á morgun ætlum við Orri að elda eitthvað gott saman hérna heima og hafa það svo næs um kvöldið :)

Á laugardaginn ætlar bekkurinn minn að halda matarboð heima hjá Rikke. Maj bekkjarsystir mín ætlar svo að halda partý heima hjá sér eftir matinn. Þar sem að það er búið að vera frekar strembið í skólanum undanfarið langar mig svo að fara. Mér finnst líka að bekkjarfélagar mínir geri mjög sjaldan eitthvað saman þannig að maður ætti að sýna lit og mæta.
Það er bara eitt vandamál og það er að redda pössun...

Posted by: Sandra @ 14:13

þriðjudagur, nóvember 02, 2004  

Hvað er málið með modernus...veit það einhver?? Get ekki séð hverjir eru helstu notendurnir á síðunni. Þetta er búið að vera svona í soldinn tíma, hélt að þetta væri bara eitthvað tímabundið en það er komið frekar langt síðan að það var. Er einhver sem veit e-ð um þetta? já og eitt í viðbót, veit einhver hvernig ég get losnað við þetta blogger merki í vinstra horninu?

Posted by: Sandra @ 21:01  

Þessi var tekin um helgina. Hann komst í tónlistarherbergið hérna á kollegíinu og það var að sjálfsögðu ráðist á trommurnar, þar sem Alexander er alveg sjúkur í þær :)


Posted by: Sandra @ 19:36  

Erum búnar að vera á fullu síðastliðna daga. Í gær skiluðum við svo árangrinum (skýrslur úr microbiologi). Er eitthvað svo þreytt og heilalaus eftir þetta þannig að ég hef því voða lítið að segja í augnablikinu...

Posted by: Sandra @ 11:23
 



Hafðu samband:

Sendu mér póst


Bloggarar:

Orri
Silla
Inda
Halla
Matti
Karen
Heiða
Lísbet
Gullan
Dúnna
Sunna
Sammi
Gúrkan
Thelma
Sæunn
Kolbrún
Aprí­l Eik
Háli Slick
Jóhanna
Helga Sif
Elín Marta
Bloggari.is
Aldí­s Marí­a
Þórey Ösp
Sigga Birna
Forystugeitin
Helga Sigríður
Gunnar Pétur
Harpa og Árni
Erna og Bjarni
Harpa Halldórs
Karen Konfekt
Ö–ssi og félagar
Gústi og Hrefna
Hildur og Halldór
Sæunn og Denni
Anna Lísa frænka
Gardentown Girls
Árgangurinn minn


Smáfólkið:

Börnin
Dagur
Anna Sól
Lucas Már
Noel Darri
Róbert Örn
María Kristín
Rúben Breki
Bjarki Kröyer
Ágústa María
Bryndí­s Hekla
Eysteinn Ernir
Arnar Ebenezer
Dagbjört Stjarna
Ragnheiður Elí­sabet
Ungi Huldu og Kristins
Sveina Rósa og Brynja
Rakel Mist og Vilhelm Ari
Svava Rún og Elma Katrí­n
Kristófer Karl og Júlía Marín
Róbert Arnar og Victor Aron
Victor Andri og Margrét Ásta
Sara Emily og Hörður Christian


Ýmislegt á IS:

Mbl
Leit.is
Femin
Skype
Tilveran
Batman
Húmor.is
Betra.net
Spámaður
Friendster
Íslendingabók
Vantar þig far?
Land barnanna
Útivistaparadí­sin
Fréttir frá Ísafirði
Webcam á Ísafirði


Ýmislegt í­ DK:

Fréttir í­ DK
Gulu síðurnar
Stúdentafélagið
íslendingafélagið
Kort yfir Danmörk
Miðasala á tónleika
Samgöngur í Danmörku
Allt um Kaupmannahöfn
Ferðaplan fyrir Danmörk
Webcam í­ Kaupmannahöfn
Upplýsingasíða um Danaveldi


Skrifaðu í gestabókina

MYNDAALBÚ™M 1

MYNDAALBÚM 2

MYNDAALBÚ™M 3

MYNDAALBÚ™M 4