--> [ Lífið í Køben ]

 [ Lífið í Køben ]

 
 



þriðjudagur, maí 30, 2006  

Jæja..þá er stresstímabilið hafið. Ég er ekki að nenna þessu. Orri er að klára prófin á morgun og ég er rétt að byrja!! Pirr....Sem betur fer ætlar hann að vera með Alexander fyrir mig svo að ég get einbeitt mér betur að prófunum...

Ég fattaði allt í einu í gærkvöldi hvað það væri stutt í prófin. Fór að stressa mig og ætlaði aldrei að sofna. Svefnleysi er eitthvað sem einkennir próftímabilið. Maður getur ekki sofið almennilega útaf stressi...þoli ekki að vera andvaka og geta ekki sofnað fyrr en um miðja nótt. Í gærkvöldi ætlaði ég mér að fara að sofa snemma. Ég lagðist á koddann um ellefu leytið og ætlaði mér að sofna strax..en nei það gerðist auðvitað ekki...ég sofnaði ég ekki fyrr en klukkan þrjú í nótt!! Þar sem hugsanirnar voru alveg á milljón ákváð ég að taka fram blað og penna og skrifa niður það sem var að snúast í hausnum á mér. Varð bara að koma þessu frá mér. Leið auðvitað miklu betur eftir að hafa skrifað nokkrar blaðsíður niður og sofnaði auðvitað mjög fljótt eftir það. Í morgun var rise and shine klukkan sjö...Hressandi....þannig að núna verður maður bara að lifa á orkudrykkjum til að halda manni vakandi...púff...jæja verð að halda áfram...má ekki vera lengur í pásu...þetta internetstúss er tímaþjófur í prófunum....

Posted by: Sandra @ 11:16

föstudagur, maí 26, 2006  

Silla fæddi heilbrigðan litinn Christiansen í nótt kl 5!! Hann var 49 cm og 14-15 merkur, að mig minnir...Yndislegt að ein önnur vinkonan úr hópnum sé orðin mamma :o)

Innilega til hamingju litla fjölskylda!!

Posted by: Sandra @ 16:50

fimmtudagur, maí 25, 2006  

Það er komið íslensk skyr í Irmu!!! Við Alexander fórum auðvitað og keyptum í gær fyrir heimilið. Um leið og við komum heim fengum við okkur smá smakk...ekkert smá gott!!! :o) Mér finnst samt einn galli við það...það er frekar dýrt...en það er bara ekki hægt að sleppa því að kaupa það...það er svo gott!! Mér finnst þetta samt svo hallærislegt. Afhverju haldiði að Íslenskir karlar séu svona sterkir og Íslenskar konur fallegar?!?!? nú útaf skyrinu...jájá einmitt..um að gera að reyna að auglýsa þessa vöru eins og heitar lummur....þetta hlýtur að virka hehe...

Ég er að spá í að baka köku með lærdómnum í dag...langar eitthvað svo að baka...Stressið er ekki enn farið að hrjá mig enda finnst mér alltof langt í fyrsta prófið...Ég hef alltaf byrjað að læra fyrir prófin mjög snemma þannig að próftíminn verður MJÖG langur eða um 1-2 mánuðir. Eftir hvert tímabil er maður algjörlega búinn á því andlega, því hef ég ákveðið að nota ekki svona mikinn tíma í undirbúning þess önn. Ég ætla að taka max 10 daga fyrir hvert próf...oh..hvað mér hlakkar til að komast í sumarfrí, en það verður ekki fyrr en 23 júni!!

Posted by: Sandra @ 12:51

þriðjudagur, maí 23, 2006  

Ég fékk sent e-mail frá H&M þar sem mér var boðið að taka þátt í ljósmyndakeppni. Ég átti að senda bestu ferðamyndina mína þannig að ég sendi inn eina mynd. Væru þið til í að gera mér þann greiða að kjósa myndina mína? Hún er á þessari síðu..Veljið Contest, svo skrifið þið í search dálkinn(sem er uppi, lengst til hægri) sandra maria. Þá kemur myndin mín upp! :) Það eru nú margar myndir sem eru miklu flottari en mínar..en hva..maður á að nota samböndin hehe...

Posted by: Sandra @ 17:51

föstudagur, maí 19, 2006  

Ég er ordinn svo lélegur bloggari ad thad hálfa væri nóg. Er bara ekki ad nenna thessu...Hef svo sem alveg nóg ad segja, á bara svo erfitt med ad setjast nidur vid tølvuna og skrifa..iss....kannski ég taki mér fri fra blogginu i sma tima....

Thad er annars allt gott ad frétta hédan. Thýskalandsferdin var frábær í alla stadi!! Mig langar bara strax aftur í heimsókn :) Ingó og Hrefna tóku ekkert smá vel á móti okkur og dekrudu okkur alveg upp ur skonum!! Vid fengum frábært vedur og nutum thess i botn ad vera hjá theim. Thad gekk nú ekkert sérstaklega vel á leidinni til theirra thar sem ad vid misstum af ferjunni og lentum i umferdarteppu! Thad var thvi enntha betra ad komast i kaldan bjórinn hja brósa eftir ad hafa sitid i bilnum allan daginn...
Um kvøldid grilludum vid og bordudum uti i gardi. Tókum i nokkur spil, drukkum vin og hlustudum a tonlist. A laugardeginum forum vid i bæinn en thar var Mai Wochen i gangi og thvi mikid um manninn. Thar voru allskyns básar med thvilikt girnilegum mat, alveg fra sukkuladihududum ávøxtum til heillar máltidar. Thar var einnig ad finna tivolitæki og allskonar sølubása. Vid gæddum okkur á ýmsum gódgætum, smøkkudum jardaberjardrykk (held ad thad hafi verid einhver thjódardrykkur), røltum um bæinn, fórum á kaffihus og høfdum thad gott. Svo var farid heim ad slappa af, sumir horfdu á Liverpool leikinn medan adrir dottudu i lazyboy stólnum :o) Vid endurtókum leik føstudagskvøldins thar sem adrir en spilameistarinn sjálfur *hóst*Orri* fengu ad sýna sig hehe ;) A sunnudeginum forum vid i gøngutur upp ad vatni og fengum okkur kaffi adur en vid løgdum af stad. Ferdin heim gekk mjøg vel og vorum vid aftur i kotid okkar um tiu. Vid vorum mjøg ánægd med ferdina og hløkkum mikid til ad hitta thau aftur. Ég ætla ad setja myndir fra ferdinni inn a heimasiduna hans Alexanders sennilega i dag, ef ekki a morgun...Thangad til næst....

Posted by: Sandra @ 09:21

þriðjudagur, maí 09, 2006  

Radiohead tónleikarnir voru geeeeðveeeikir!!! Vá hef aldrei upplifað aðra eins tónleika!! Maður er bara enn í sæluvímu :o) Ég vissi ekki alveg hverju ég átti von á þar sem að þeir voru að taka mikið af nýjum lögum en þessir tónleikar fóru langt fram úr mínum bestu vonum. Stemningin var gríðaleg í KB hallen og þeir voru í þvílíku stuði! ;) Maður á nú eftir að lifa lengi á þessu....

Eftir þessa tónleika er maður alveg veikur fyrir því að fara á sem flesta tónleika sem eru í boði hér í Köben. Ég er búin að kaupa miða á Massive Attack sem verða 25 ágúst. Svo er ég að reyna að fá miða á Madonnu sem verða 24.ágúst og á George Michael sem verða 11 nóvember, en það var uppselt á þá tónleika nánast strax. En hva...það hlýtur að reddast að fá miða á þá ;)

Það er svo loksins að koma að Þýskalandsferðinni. Við förum snemma á föstudaginn og komum aftur á sunnudagskvöldið. Mig hlakkar ekkert smá mikið til að hitta Ingó og co. Það verður fínt að fá smá frí áður en prófin byrja...Og svo er víst hitinn búinn að fara upp í 27 stig þar..þannig að ég vona að það haldist bara þannig þangað til að við komum hehe...En núna ætla ég að fara út á gras með teppi og lesa í sólinni....

Posted by: Sandra @ 10:19

fimmtudagur, maí 04, 2006  

Það er búið að vera geggjað veður í dag og í gær. Við lyfjafræðinördarnir erum bara búin að vera á cbs alla vikuna að lesa. Veðurspáin er alveg frábær næstu daga....sól og aftur sól :) og það eru að koma próf!! :( Það á nú ekki eftir að vera auðvelt að hanga svona inni og lesa en sem betur fer verðum við saman í þessu þannig að það er ágætis spark í rassinn...

Eftir laaangan dag á bókasafninu (þar sem veðrið var svo gott) dreif ég mig í því að sækja Alexander. Þegar ég var búinn að sækja hann hjóluðum við í Paradís og splæstum á okkur ljúffengan heimatilbúinn ís... Röltum svo niður að vatninu hérna rétt hjá og höfðum það huggulegt í sólinni...ekkert smá næs...Það verður gaman þegar prófin eru búin, því þá hefst pils-hlýrabola-strandar-tímabilið!! Á svona tímum langar mér helst til að eiga minn eigin garð svo maður geti haft það notalegt án þess að hafa fullt af fólki í kringum sig...en það er víst ekki að fara að gerast á námsárum...

Á morgun er bekkurinn minn að fara út að borða og ætla ég að skella mér með. Það er afslutningsfest í skólanum og er planið að kíkja þangað líka. Ég hef nú ekki farið á fredagsbar síðan í fyrsta bekk þannig að ég má til með að fara núna...

Á laugardaginn er það svo RADIOHEAD!!!!!!! :)

Posted by: Sandra @ 19:06

mánudagur, maí 01, 2006  

Ég hef bara ekkert að segja þessa dagana. Lífið gengur sinn vanagang. Próflesturinn er að fara að byrja og er stressið aðeins farið að kítla mallakútinn. Var að henda inn nokkrum videomyndum inn á heimasíðuna hans Alexanders ef einhver vill skoða....

Posted by: Sandra @ 21:17
 



Hafðu samband:

Sendu mér póst


Bloggarar:

Orri
Silla
Inda
Halla
Matti
Karen
Heiða
Lísbet
Gullan
Dúnna
Sunna
Sammi
Gúrkan
Thelma
Sæunn
Kolbrún
Aprí­l Eik
Háli Slick
Jóhanna
Helga Sif
Elín Marta
Bloggari.is
Aldí­s Marí­a
Þórey Ösp
Sigga Birna
Forystugeitin
Helga Sigríður
Gunnar Pétur
Harpa og Árni
Erna og Bjarni
Harpa Halldórs
Karen Konfekt
Ö–ssi og félagar
Gústi og Hrefna
Hildur og Halldór
Sæunn og Denni
Anna Lísa frænka
Gardentown Girls
Árgangurinn minn


Smáfólkið:

Börnin
Dagur
Anna Sól
Lucas Már
Noel Darri
Róbert Örn
María Kristín
Rúben Breki
Bjarki Kröyer
Ágústa María
Bryndí­s Hekla
Eysteinn Ernir
Arnar Ebenezer
Dagbjört Stjarna
Ragnheiður Elí­sabet
Ungi Huldu og Kristins
Sveina Rósa og Brynja
Rakel Mist og Vilhelm Ari
Svava Rún og Elma Katrí­n
Kristófer Karl og Júlía Marín
Róbert Arnar og Victor Aron
Victor Andri og Margrét Ásta
Sara Emily og Hörður Christian


Ýmislegt á IS:

Mbl
Leit.is
Femin
Skype
Tilveran
Batman
Húmor.is
Betra.net
Spámaður
Friendster
Íslendingabók
Vantar þig far?
Land barnanna
Útivistaparadí­sin
Fréttir frá Ísafirði
Webcam á Ísafirði


Ýmislegt í­ DK:

Fréttir í­ DK
Gulu síðurnar
Stúdentafélagið
íslendingafélagið
Kort yfir Danmörk
Miðasala á tónleika
Samgöngur í Danmörku
Allt um Kaupmannahöfn
Ferðaplan fyrir Danmörk
Webcam í­ Kaupmannahöfn
Upplýsingasíða um Danaveldi


Skrifaðu í gestabókina

MYNDAALBÚ™M 1

MYNDAALBÚM 2

MYNDAALBÚ™M 3

MYNDAALBÚ™M 4