--> [ Lífið í Køben ]

 [ Lífið í Køben ]

 
 



sunnudagur, maí 30, 2004  

ùff..hvad ég er ekki ad meika dagana núna. Og ég er bara rétt byrjud í prófum :( Mig er farid ad hlakka ansi mikid til ad fara heim núna. Adallega út af thví ad mér leidist alveg grídarlega hérna í augnablikinu. Umgengist engann annan nema sjálfan mig og ég held ad thad sé ekki gott hehe..Mamma fór til Valgards midils í gær og thar fékk ég smá skilabod ad handan. Hann sagdi ad ég væri sjálfri mér verst hehe :) Thví ad ég væri alltaf ad berja sjálfan mig nidur. Og ad ég hafi ekki alveg nógu mikla trú á sjálfri mér. Sérstaklega núna (sennilega prófin) en ad thad eigi eftir ad lagast. Og svo sagdi hann ad ég muni vera sáttari og ad thad eigi eftir ad vera eftir svona næstu 12 mánudi. En ad lokum fékk ég ad vita ad ég kæmi heim med sigur, ekki verra ad vita af thví :)
Ég fór svo ad spá í thví hvad hann hafdi verid ad segja. Fyndid ad madur tekur aldrei eftir thví hvernig hlutirnir eru hjá manni. Madur ýtir thví einhvern veginn bara frá sér. En thad sem hann sagdi er víst satt thvi midur :/ En ég verd bara ad fara taka mig í gegn hehe :)

Bókasafnid var lokad í gær thví thad var laugardagur thannig ad ég lærdi í lesherberginu sem er hérna á kollegíinu. Thegar klukkan var ordin sjö var ég búin ad fá nóg thannig ad ég ákvad ad fá mér ad borda og skella mér svo adeins út. Ég hafdi ekki farid út allan daginn og ég var ordin svo andlaus. Thannig ad ég fór í langan og gódan göngutúr. Gud thegar ég segi thetta thá hljóma ég eins og mamma mín hehe...En allavega thá er rosalega flott svædi hérna nálægt mér thar sem madur getur komist adeins í burtu frá traffikinni og hávadanum. Eftir thetta skrapp ég til kaupmannsins á horninu og keypti mér fersk jardaber og kirsuber..umm..thad var ekkert smá gott. Sídan kom ég heim og datt nidur á góda stelpu biomynd í sjónvarpinu. Thetta var svo sem ágætis dagur en vá hvad ég er komin med leid á sjálfri mér hehe..

Ég fór eitthvad ad spá í thví í gær thegar ég sat í lesherberginu, hvad Íslenskir strákar eru miklu meiri töffarar en danskir. Thad voru nefnilega 3 íslenskir strákar tharna sem voru ad læra og madur tók sko alveg eftir theim. Svo finnst mér alltaf svo mikil læti í kringum Íslendinga. Vid tölum svo hátt, ad thad mætti halda ad allir ættu ad ad heyra ad thú,Íslendingurinn, sért ad tala.
En aftur ad strákunum thá er thetta alls ekkert verra ad vera svona miklir töffarar, thannig ad their eru ad fá smá hrós, ef thad mætti kalla thetta hrós. Eftir ad ég sagdi um daginn ad their kynnu ekki ad deita thá er thetta allavega plús :)

Jæja thetta er ordid allt of langur pistill og ég verd ad fara læra :(

Posted by: Sandra @ 10:36

fimmtudagur, maí 27, 2004  



Var ad fá thessa skemmtilegu mynd frá Jóhönnu. Hún var tekin ádur en vid fórum út ad borda og svo í bió. Ég vona ad thad sé í lagi ad ég birti hana :)

Posted by: Sandra @ 22:53  

Helv..djö...ansk...gekk mér ílla í thessu prófi. Ég er svo greinilega fallin!!! :( Thetta var ekkert smá thungt próf. Vid erum med sama kennara og kenndi okkur stærdfrædi fyrir áramót. Karlinn hefur verid ad hefna sín á stærdfrædiprófinu. Thad var adeins of létt thannig ad hann hefur greinilega ætlad ad ath hvad vid gætum..helviskur..Afsakid blótid en svona er thetta stundum. Èg var í sal thar sem voru 50 manns. Thegar tíminn var búinn var ennthá fullur salurinn. Og ekki einu sinni ein manneskja hafdi farid fyrir áætladan tíma. Thad segir manni ansi margt. Svo spjalladi ég vid fólkid sem er med mér í bekknum og thad voru allir ad tala um hvad thetta próf hafi verid óedlilega thungt. En ég verd bara ad taka thetta aftur..djö.var ad vonast til ad thetta myndi reddast. Er ekki ad nenna ad taka thetta aftur en svona er thetta :(
En thad thýdir ekki ad vera ad svekkja sig á thessu...

Alexander flaug í gær til Íslands med Oddnýju og co. Thad er ekkert smá skrítid ad vera ein í íbúdinni. Sérstaklega afthví ad íbúdin er búin ad vera full af gestum upp á sídkastid. Aldís María ætlar ad koma á næsta mánudag og gista hjá mér eina nótt. Hún er ad fara til Íslands aftur thannig ad ég býst vid thví ad hún verdi sídasti gesturinn í bili. Annars er ég ad spá í ad leigja íbúdina mína í júlí. Ég var ad spá í ad nýta mér thessa bloggsídu og auglýsa smá :) Ef einhver hefur áhuga eda veit um einhvern sem vantar íbúd í Kaupmannahöfn í júlí mánudi, thá megid thid/thú endilega hafa samband. Ad sjálfsögdu fylgja húsgögn med. Thad tekur 10 min ad fara med strætó í bæinn og einnig er hægt ad taka lest. Lestarstödin er mjög nálægt íbúdinni. Thad er hægt ad ná í mig í síma +45 25138656 eda e-mail: sandramar82@hotmail.com

Posted by: Sandra @ 15:16

þriðjudagur, maí 25, 2004  

Thá eru stelpurnar farnar heim :( Thad var ekkert smá gaman ad hafa thær hérna. Mér fannst samt soldid svekkjandi hvad vedrid var leidinlegt, en thær koma vonandi aftur thegar thad er betra. Ég gat reyndar ekki verid mikid med theim en vid gerdum samt ýmislegt saman :) Í gær fórum vid út ad borda á Mama rosa ( er sko fastagestur hehe..hef farid med flesta gestina thangad). Svo eftir thad fórum vid í bío á Troy, sem mér fannst vera ekkert smá gód. Mæli med henni, og sérstaklega fyrir stelpur hehe flottir kroppar thar á ferdinni úff....En allavega thá er búid ad vera rosalega gaman undanfarna daga. Ég er nú ekki búin ad vera eins dugleg og ég ætladi mér ad vera í lærdómnum, en ég bjóst líka alveg vid thví. Núna eru bara 2 dagar í fyrsta prófid og er ég bara frekar bjartsýn. En thad gæti líka breyst skyndilega thegar ég sé prófid
:(
Á morgun koma svo Alexander,Oddný,Erla Kristín, Arnar Jóel, Sæunn og Svava Rún frá Lalandia. Thau eiga flug annad kvöld heim á klakann og fer Alexander med theim :( Thad á eftir ad vera tómlegt í kotinu, en ég hef vonandi ekki tíma til ad hugsa út í thad thar sem ég verd ad sökkva mér í lærdóm. En núna verd ég víst ad fara ad pakka fyrir soninn...

Posted by: Sandra @ 21:11

miðvikudagur, maí 19, 2004  

Thá eru stelpurnar komnar í heimsókn og thad er búid ad vera rosa gaman :) Thær lentu á sunnudagskvöldinu og ég fór ad sjálfsögdu ad sækja thær á flugvöllinn. Sídan á mánudeginum fór ég med Alexander leikskólann og ætladi ad vera rosa dugleg ad læra á bókó, en ákvad frekar ad vera med stelpunum, svona afthví ad thetta var nú fyrsti dagurinn theirra. Vid ákvádum ad skella okkur í tívolí, og stelpurnar keyptu sér árskort. Thannig ad nú verda thær ad vera duglegar ad kíkja til Køben á árinu hehe :) En allavega thá fórum vid í flestu stærstu tækin og thad var ekkert smá gaman...Sumir öskrudu eins og their áttu lífid ad leysa en adrir hlóu sig máttlausa og audvitad var farid aftur og aftur í tækin hehe.. vid vorum eins og trylltir krakkaormar :) Sídan um fjögur leytid fórum vid og sóttum Alexander. Thar næst var haldid á strikid og kíkt í búdir. Vid vorum ordnar ansi threyttar thannig ad vid fórum ad versla í matinn og svo heim ad elda. Kvöldinu var tekid rólega hjá Kareni,mér og Alexander. En Jóhanna og Hulda voru svo æstar í tívolíid ad thær fóru aftur hehe...alveg ótrúlegar :)
Í gær fór ég í skólann og stelpurnar kíktu í bæinn. Um kvöldid fórum vid út ad borda á Jensens bøfhus, steikhús sem er mjög thekkt hér í DK. Okkur fannst maturinn vera mjög gódur, mælum allavega med honum. Eftir matinn fóru tívolísjúklingarnir aftur í tívoli hehe...En ég og Alexander fórum heim.
Stelpurnar voru nú ekki alveg sáttar vid fataúrvalid í bænum í gær, thannig ad í dag ætla thær ad kíkja í Fields, stærsta verslunarmidstöd í Skandinavíu. Ég hef ákvedid ad vera súper dugleg í dag (eins og ég ætla reyndar alltaf ad vera hihi) og fara á bókó.
Svo seinnipartinn koma Oddný, Kristín, Sæunn, Svava Rún, Erla Kristín og Arnar Jóel. Thad verda sennilega mikil fagnadarlæti, thví sumir eru búnir ad bída ansi lengi eftir thessum degi.
Á laugardaginn koma Steini frændi og Solla. Thau eru ad koma í vinnuferd og smá frí líka. Vid erum ad spá í ad hittast adeins á sunnudeginum, kannski kíkja á kaffihús eda thá ad ég bjódi theim hingad heim í smá kaffi.
Svo kemur Silla líka á laugardeginum en hún fer strax til Islands sama dag(hún er ad fara flytja aftur heim á Ísafjörd), thannig ad thad verdur nóg um gestagang næstu dagana :) Og vegna thessarra anna og audvitad lærdóms býst ég ekki vid thví ad skrifa mikid inn á thessa bloggsídu mína..

Posted by: Sandra @ 10:01

laugardagur, maí 15, 2004  

Thad vantar ekki ad Íslendingarnir eru alveg ad skíta á sig í Eurovision..Núna erum vid bara komin med 4 stig...lélegt!! Og svo fengum vid bara 2 stig frá dönum, mér finnst thad nú mjög slapt (veit ekkert hvernig á ad skrifa thetta), en lagid er greinilega ekki nógu gott.

Fyndid ad vera ekki í Eurovision partýi núna heima á Islandi :) Mig langar nú soldid ad vera í gódra vina hóp núna eda í Euro partýi heima, thad er alltaf svo mikil stemning. Mikael ætladi nú ad láta sjá sig í kvöld, en hann hefur bara ekkert látid heyra í sér. Thannig ad ég ákvad bara ad fá mér bjór og hafa thad næs fyrir framan imbann ;) Er meira ad segja ad gæda mér á súkkuladi med.. frekar fyndin blanda. Bjór og súkkuladi hehe..en thetta er samt gott. Stelpur og súkkuladi, thad er e-d vid thad :)

Ég var súper dugleg í dag í sambandi vid thrif og lífræna efnafrædi (uppáhaldsfagid). Ég opnadi ekki bók í edlisfrædi hmm..sem thýdir ad ég tharf ad vera dugleg á morgun :( Stelpurnar lenda um átta leytid thannig ad thad er ekki hægt ad afsaka sig á komu theirra..

Posted by: Sandra @ 23:33  

Ég komst ekki í partýid í gær, en thess í stad var ég nánast límd vid sjónvarpsskjáinn í allan gærdag og langt fram eftir nóttu ad horfa á brúdkaupid. Mér fannst thetta mjög flott allt saman og thegar loksins var komid ad athöfninni sjálfri runnu bara tár nidur kinnarnar mínar...thetta var ekkert smá falleg athöfn. Reyndar tárast ég nánast alltaf í brúdkaupum, er soddan væmiltíta thegar ad kemur ad svona athöfnum :) Veit ekki hvernig thetta verdur thegar ég gifti mig, ef thad gerist einhvern tímann. Ætli ég verdi ekki hágrátandi hehe...
En í dag ætla ég ad vera ógedslega dugleg. Stelpurnar eru ad koma á morgun!!! og ég verd ad taka íbúdina í gegn. Og ekki má klikka á lærdómnum í dag. Mér finnst bara edlisfrædi svo leidinleg thannig ad thad er svo erfitt ad koma sér í gírinn :(
En í kvöld ætlar Mikael ad koma í heimsókn :) Ég var búin ad gleyma thví ad Eurovision væri í kvöld, hvernig er hægt ad gleyma thví!?! en thad hefur ekkert verid talad um thetta hérna thannig ad madur er ekki alveg í sambandi. Brúdkaupid er búid ad kæfa allt thannig ad thad er ekkert skritid ad madur hafi gleymt thessu. En ég er búin ad ákveda ad nýta mér kosningarréttinn og hringja og kjósa Ísland í fyrsta sætid :) Thó mér finnist thad ekki vera neitt sérstakt, en madur stydur audvitad sína thjód. Ég hef bara heyrt thad tvisvar sinnum eda e-d álíka thannig ad ég er alls ekki búin ad venjast thví. Mér finnst thad allavega ekki nógu grípandi svona í fyrstu. Audvitad tharf lagid ad vera gripandi til ad geta nád langt. Reyndar hef ég ekki heldur ekkert heyrt í hinum lögunum, thannig ad lagid okkar á kannski einhverja möguleika, hver veit. En vitidi númer hvar Ísland er í rödinni?? Ég fór inn á ruv.is og eurovision.is til ad ath thad, en fann thad ekki.
Talandi um Eurovision, ég man ekki hvort ad ég hafi verid búin ad segja ykkur frá thessu, en um daginn spurdi ég dönsku stelpurnar hvort ad thær ætludu ad fylgjst med Euro í sjónvarpinu. Thær vissu ekki einu sinni hvad Eurovision væri. Svo var ég ad segja theim frá thví,thá sagdi ein:"Já thú ert ad meina Melodi Grand Prix. Já ég hef séd thad einu sinni". Greinilegt ad danir eru ekki alveg eins áhugasamir eins og Íslendingar thegar ad kemur ad thessu. Íslendingar missa sig alveg í thessu, halda rosa Eurovision partý á hverju ári. Og svo er audvitad mikid talad um thad í fjölmidlum. En hérna er thetta allt annad...

Posted by: Sandra @ 11:28

fimmtudagur, maí 13, 2004  

Jæja thá er ég nokkurn veginn komin í upplestrarfrí í skólanum. Á bara eftir einn dag í næstu viku og svo taka prófin vid. Ég er nú ekki eins ánægd med daginn í dag eins og ég var med daginn í gær, thví thad var bara ekkert lært í dag.. Og ég sem var búin ad plana ad fara á bókasafnid og læra eins og brjálædingur, en skatturinn eydilagdi daginn heldur betur fyrir mér. Ég er búin ad gleyma thví adeins of oft ad ég thurfi ad skila inn ársuppgjöri til lín hédan frá DK, thannig ad ég ákvad ad drífa mig í morgun og sækja thetta. Nema hvad ad eins og alltaf med mig og danska kerfid thá var thetta vesen. Fyrst var mér bent á ad fara á einn stad og svo fór ég á annan stad. Svo beid madur audvitad í bidröd í ansi laaaangan tíma. Ég var næstum thví búin ad gefast upp, en svo kom loksins rödin ad mér. Thetta tók ekki nema 2 mín thegar ég var loksins komin inn og ég fékk ad vita ad ég ætti ad hringja í næstu viku. Hún ætladi ad sjá hvort ad hún gæti fengid thetta fyrir mig. Ég er alveg viss um ad thetta verdi e-d vesen thví thad lodir gjörsamlega vid mig. En thad kemur víst í ljós. Eftir thetta fór ég til Kirstine og fékk lánadar glósur hjá henni. Thad tók sinn tíma ad hjóla thangad og thegar ég var loksins komin heim var klukkan ordin tvö. Svo var Alexander sóttur einum og hálfum tíma sídar. Thannig ad ég er bara langt í frá búin ad vera dugleg í dag. Ég ætti reyndar ad vera ad læra núna en ég bara nenni thví ekki, er alltof löt!!! En í tilefni thess hvad ég er löt ætla ég ad smella einni mynd hédan frá Køben, sem var tekin um sídustu helgi...Vedrid er búid ad vera frábært hérna, en thví midur er spád rigningu á morgun, frekar fúlt thví brúdkaupid sjálft er á morgun. Ég býst thví ekki vid ad vera dugleg thví audvitad ætla ég ekki ad missa af thví hehe :)

Já svo má ekki gleyma adalmálinu. Jóhanna, Hulda og Karen eru ad koma á sunnudaginn!!! Hlakka ekkert smá mikid til ad fá thær í heimsókn :) :) Úff..ég verd samt ad vera hrikalega dugleg ad læra á medan thær eru hérna, thví fyrsta prófid mitt er edlisfrædi :(

Ég var ad spá í thví ad fara í partýid sem er búid ad bjóda mér í á morgun, en ég næ ekki í barnapíuna :( Ég er farin ad halda ad hún sé bara farin til Íslands aftur thví thad er alltaf slökkt á símanum hennar eda jafnvel ad fordast mig hehe..en ég held samt ekki. Hùn braut nebbla á sér tána um daginn thannig ad thad kæmi mér ekkert á óvart ef hún væri farin aftur heim. Ég vona ad sjálfsögdu ekki, en á medan verd ég víst ad vera uppáthrengjandi og halda áfram ad reyna ad hringja í hana.

En hérna kemur myndin af adal kroppunum í Køben :)


Posted by: Sandra @ 17:00

mánudagur, maí 10, 2004  

Ég komst ad thví um helgina ad ég gjörsamlega tholi ekki karlmannsverk!!! Thad er nú ástæda fyrir thví ad sumt er kallad karlmannsverk!!
Ég var nánast hætt ad sofa almennilega á nóttunni thannig ad ég ákvad ad skella mér í Ikea á laugardeginum og kaupa gardínur fyrir svefnherbergid og stofuna. Vandamálid var ad ég vard ad kaupa gardínustöng,thví thad var enginn fyrir. En ad setja %#&?=)%¤ stöngina upp var ekki eins audvelt og ég hélt ad thad yrdi. Ég er nú ekki há í loftinu og tholinmædin mín alls ekki nógu gód.. En thetta sem sagt bara vidur sem ég thurfti ad skrúfa stykkid í, thannig ad audvitad átti thad ekki ad vera erfitt. En ég reyndi og reyndi en gat thad bara ekki (algjör aumingi). Thannig ad ég leigdi mér borvél og remdist vid ad setja thetta upp á tánum!! Thetta gekk fyrst bara ekkert en svo loksins kom thetta. Og ég blótadi thessu karlmannsverki í sand og ösku!! En svo er ég svo ánægd núna ad hafa getad thetta hehe..Ég er bara svo klaufsk vid svona hluti. Um daginn setti ég upp myndir á veggina hjá mér, en thad byrjadi eins og svo oft ádur ekkert vel.Veggirnir hérna eru mjög hardir og thad er ekki hægt ad negla thannig ad madur verdur ad nota borvél.Allt í gódu med thad. En thegar ég fékk borvélina í hendurnar var ég sennilega frá hálftíma upp í klukkutíma ad finna út úr thví afhverju borinn festist ekki í vélinni (ég hélt ad ég væri bara svona rosalega mikil ljóska), en eftir thennan tíma gafst ég upp og fór med hana nidur á VTG (stadurinn sem madur leigir vélina) og ákvad ad fá smá hjálp. Thad kom thá í ljós ad borvélin var bara bilud...takk fyrir, thannig ad ég fékk nýja.
Ég held bara ad ég eigi ekki ad koma nálægt thessum karlmannsverkum, en madur verdur víst ad bjarga sér. Ég er med annad dæmi sem er ad gera mig vitlausa núna..Um daginn keypti ég hillur í Ikea og nota ég thær undir fötin okkar, svona adeins til brádabirgda. Málid med thessar hillur er ad thær eru alltaf ad detta (greinilega ekki nógu vel settar saman). Thannig ad enn og aftur sannar thad sig ad ég er grídalega klaufst vid svona hluti og á helst ekkert ad koma nálægt theim. Madur bjargar sér samt en váá hvad ég tholi ekki ad gera thad sem mér finnst ad eigi ad vera karlmannsverk.
Ég er samt alveg viss um thad ad ég verdi ordin ansi gód í thessum verkum ádur en ég veit af hehe :)

Posted by: Sandra @ 18:05

laugardagur, maí 08, 2004  

Ég var ad horfa á snilldar tónleika med Radiohead rétt í thessu í sjónvarpinu. Thad er oft sem thad er verid ad sýna tónleika í sjónvarpinu hérna á föstudagskvöldum, sem mér finnst vera oftast nær mjög gaman ad horfa á, en annars finnst mér ekkert varid í sjónvarpsefnid hérna um helgar. Ekkert nema gamlar myndir og endursýndir thættir. En í kvöld eftir tónleikana hjá Radiohead skipti ég um stöd og rétt nádi í endann á ödrum tónleikum. Thad voru rokktónleikar sem voru haldnir í Parken fyrir Frederik og Mary (audvitad voru haldnir tónleikar fyrir thau). Danirnir eru alveg ad fara yfir um ad mínu mati med thetta ædi sitt á theim. Ég hálf vorkenni theim, aldrei neinn fridur fyrir ljósmyndurum og svo eru thau á forsídum allra blada. Thad er audvitad ekki fridur fyrir thessu heldur í sjónvarpinu. Á morgun hefst nidurtalning frá tívolíinu og audvitad verdur thad sýnt live. Svo er búid ad vera fullt af tháttum um Mary og brúdkaupid. Madur er bara ordinn "nett" threyttur á thessu. En sem betur fer er bara vika í brúdkaupid. Ég fór ad láta lita á mér hárid um daginn hjá Íslenskri stelpu hérna á kollegiinu, og thá spurdi hún mig einmitt hvad ég ætladi ad gera thann 14.mai. Mér fannst thad nú frekar fyndid, thar sem ég hef ekki einu sinni spád í thad hvort ad ég ætli ad gera e-d á theim degi. Kannski kíkir madur í bæinn eitthvad, en svo var verid ad bjóda mér í partý hjá fyrrverandi leigjendum mínum. Ég veit reyndar ekki hvort ég ætti ad vera ad fara. Styttist ódum í fyrsta prófid, sem verdur ad thessu sinni edlisfrædi, ekki mitt skemmtilegasta fag. Og ætli mér veitti ekki af ad nýta allann tímann sem ég hef. Annars er sídasti fredagsbarinn í skólanum thann 14 mai og thar verdur brúdkaupid varpad á stórum skjá á medan danirnir drekka sig fulla hehe...fyndin blanda en svona er thetta hérna ;)

Já ég ætladi ad segja ykkur frá thví ad ég keypti mér Se og Hør um daginn, svona adeins til ad komast inn í danska slúdrid hehe.. Fyrir utan thad ad á annarri hvorri sídu voru myndir af krónprinsinum og Mary sá ég séd og heyrt stelpuna. Haldidi ekki ad hún hafi bara verid kviknakin á myndinni!!! Ekkert smá fyndid. Danir eru svo easy going. Soldid mikill munur á thessu og heima. Í stadinn fyrir ad fá svipadar spurningar og í Íslenska Séd og Heyrt, thá er spurt hvad ummál brjósta, mjadma og rass séu, og audvitad er spurt hvad kveikir í henni. Og fyrir thetta færdu 1000 danskar. Hver myndi ekki vilja gera thetta!! Foreldrar hennar hljóta ad vera mjög stoltir og tala nú ekki um kærastann hehe...

Posted by: Sandra @ 01:02

fimmtudagur, maí 06, 2004  

Mér var farid ad vanta naudsynlega buxur thannig ad ég skrapp adeins í smá verslunarleidangur. Ég rakst á thessar flottu disel gallabuxur í einni búdinni. En eins og thid vitid (stelpurnar allavega) thá eru disel buxur frekar lágar ad aftan. Thad hefur verid soldid vandamál hjá mér. Their sem thekkja mig vita ad afturendinn minn er nú ekki ekki beint lítill hehe... Ég hef thví oftast ekkert verid ad spá í dísel buxunum, en mér fannst thessar svo flottar thannig ad ég ákvad bara ad prófa ad máta svona til thess ad svekkja mig enn einu sinni, en viti menn afturendinn minn hefur greinilega minnkad eftir allar thessar hjólreidarferdir hérna thví ég komst í thær og nú er ég ekkert smá montin :) Bara vard ad deila thessu med ykkur.

Audvitad fór ég í buxurnar í dag en svona til ad gera ykkur sem erud á klakanum græn af öfund, thá var eiginlega of heitt ad hjóla í theim. Èg tharf sem sagt ad fara ad skipta yfir í sumarfatnadinn, thó svo ad ég eigi nú ekki mikid af honum en thad verdur víst ad breytast. Ég hef reyndar verid ad spá hvort ad ég geti verid í pilsi, en ég er samt ekki alveg viss hvernig thad á eftir ad ganga á hjólinu. Ég hef nú reyndar séd thó nokkrar píur vera í sínu flottasta og á rosa hælum á hjólinu sínu. En ég held samt ad ég nenni ekki ad prófa thann pakka, en pilsid verd ég nú ad testa ;)

Posted by: Sandra @ 20:30

miðvikudagur, maí 05, 2004  

Bætti Matta vid linkana...endilega kíkid á strákinn :)

Posted by: Sandra @ 19:56  

Var ad telja dagana thangad til fyrsta prófid er og thad eru BARA 22 dagar. Ùff.. Verd ad fara ad læra!!! :(

Posted by: Sandra @ 10:13

mánudagur, maí 03, 2004  

Thad er víst einhver misskilningur med hver Mikael er..Sumir halda ad thetta sé hann hehe en hann er víst hér í bláu skyrtunni...

Posted by: Sandra @ 10:54  

Dises...kíkid á thessa sídu hahaha..Sumir thurfa víst meiri athygli en adrir!!

Posted by: Sandra @ 10:14

sunnudagur, maí 02, 2004  

Thad er búid ad vera gedveikt vedur hérna í dag. Aldís kom til okkar í gær frá Íslandi og var ad fara ádan til Finnlands. Vid fórum í tívolíid í dag, og erum búin ad vera sleikja sólina í allan dag :) Sídan fréttum vid ad thad hefdi snjóad á Íslandi!!!úff..ekki öfunda ég thá sem eru á klakanum núna hehe...

En ég ætladi bara ad segja ykkur ad ég er búin ad setja nokkrar nýjar myndir inn í albúmid frá afmælinu hennar Kirstine. Thid sem viljid sjá Mikael getid séd hann thar. Thetta er reyndar frekar fyndin mynd af honum, en thad skiptir engu máli. Verd ad fara ad læra núna, er komin med frekar mikid samviskubit :(

Posted by: Sandra @ 18:40
 



Hafðu samband:

Sendu mér póst


Bloggarar:

Orri
Silla
Inda
Halla
Matti
Karen
Heiða
Lísbet
Gullan
Dúnna
Sunna
Sammi
Gúrkan
Thelma
Sæunn
Kolbrún
Aprí­l Eik
Háli Slick
Jóhanna
Helga Sif
Elín Marta
Bloggari.is
Aldí­s Marí­a
Þórey Ösp
Sigga Birna
Forystugeitin
Helga Sigríður
Gunnar Pétur
Harpa og Árni
Erna og Bjarni
Harpa Halldórs
Karen Konfekt
Ö–ssi og félagar
Gústi og Hrefna
Hildur og Halldór
Sæunn og Denni
Anna Lísa frænka
Gardentown Girls
Árgangurinn minn


Smáfólkið:

Börnin
Dagur
Anna Sól
Lucas Már
Noel Darri
Róbert Örn
María Kristín
Rúben Breki
Bjarki Kröyer
Ágústa María
Bryndí­s Hekla
Eysteinn Ernir
Arnar Ebenezer
Dagbjört Stjarna
Ragnheiður Elí­sabet
Ungi Huldu og Kristins
Sveina Rósa og Brynja
Rakel Mist og Vilhelm Ari
Svava Rún og Elma Katrí­n
Kristófer Karl og Júlía Marín
Róbert Arnar og Victor Aron
Victor Andri og Margrét Ásta
Sara Emily og Hörður Christian


Ýmislegt á IS:

Mbl
Leit.is
Femin
Skype
Tilveran
Batman
Húmor.is
Betra.net
Spámaður
Friendster
Íslendingabók
Vantar þig far?
Land barnanna
Útivistaparadí­sin
Fréttir frá Ísafirði
Webcam á Ísafirði


Ýmislegt í­ DK:

Fréttir í­ DK
Gulu síðurnar
Stúdentafélagið
íslendingafélagið
Kort yfir Danmörk
Miðasala á tónleika
Samgöngur í Danmörku
Allt um Kaupmannahöfn
Ferðaplan fyrir Danmörk
Webcam í­ Kaupmannahöfn
Upplýsingasíða um Danaveldi


Skrifaðu í gestabókina

MYNDAALBÚ™M 1

MYNDAALBÚM 2

MYNDAALBÚ™M 3

MYNDAALBÚ™M 4