--> [ Lífið í Køben ]

 [ Lífið í Køben ]

 
 



mánudagur, ágúst 27, 2007  

Þá hefst síðasta vinnuvikan mín í skúringunum. Ég skilaði lyklunum af Blend búðinni í dag þannig að núna er sú vinna formlega búin!! :o) Sem þýðir það að ég á bara eftir að skúra 2svar sinnum og þá er ég loksins komin í langþráð fæðingarorlof! :)

Annars fórum við familían í myndatöku hjá Aldísi Pálsdóttur ljósmyndara í gær. Endilega kíkið inn á síðuna hjá henni, þá getið þið skoðað það sem hún hefur verið að gera...
Við fengum þvílíkt margar flottar myndir í þessari myndatöku. Vorum í stúdíoinu hjá henni í allan gærdag, héldum nefnilega að svona myndataka tæki ekki nema 2 tíma eða svo, en við vorum þarna í 6 klukkutíma hehe..en það var sko aldeilis þess virði :) Svo þegar að litla fæðist þá mun hún koma til okkar og taka nokkrar myndir af henni og okkur saman. Það verður gaman að eiga þetta og geta sett einhverjar myndir í ramma og upp á vegg í nýja húsinu :o)

Svo ætlum við að velja nokkrar myndir úr til þess að prenta út og setja í albúm. Ég ætla að setja nokkrar myndir inn á heimasíðuna hans Alexanders fyrir þá sem vilja skoða. Annars verða margar af myndunum ekki settar á netið,þar sem að mér finnst það bara vera við hæfi að hafa þær út af fyrir okkur...
Þess má geta að þetta er sami ljósmyndarinn sem tók bumbumyndir af mér og Eyrúnu í maí sl.

Það er ótrúlega gaman að því hvað bumban er orðin sígin. Ég fann það bara allt í einu í gærmorgun, fannst eins og að ég væri komin með fótbolta á milli lappanna hehe... Svo sést það líka á myndinni hérna til vinstri hvar hausinn er...alveg ótrúlegt...það er hægt að klikka á myndirnar til þess að fá þær stærri...

Posted by: Sandra @ 16:52

fimmtudagur, ágúst 23, 2007  

Jæja þá fer að koma að því að ég fari í fæðingarorlof...aðeins vika eftir!! í dag var eiginlega síðasti dagurinn minn í Blend. Allt er tilbúið og kemur bíll á morgun til að sækja allt dótið. Ég þarf því bara að mæta í 1-2 tíma eftir skúringarnar og þá er þetta búið!! þvílíkur léttir að vera búin að klára þetta...eftir morgundaginn á ég bara eftir að vinna þrisvar sinnum í skúringunum og þá er ég formlega komin í fæðingarorlof! :o) Í lok næstu viku verð ég því búin að vinna 206 tíma þennan mánuðinn sem þýðir að ég hafi unnið að meðaltali 51.5 tíma á viku! algjört rugl...og ég sem fæ bara greitt fæðingarorlof fyrir max 37 tíma á viku...en hva..ég fæ þá ágætis laun þennan mánuðinn ;)

Ég fór í síðustu læknisskoðunina í þessari viku. Það leit allt mjög vel út fyrir utan það að ég hef ekkert þyngst síðan fyrir um mánuði síðan..ekki einu sinni um eitt gramm. En það er sennilega útaf vinnunni...er búin að vera svo mikið á hlaupum þannig að það er kannski ekki skrítið...vonandi verð ég aðeins búin að bæta á mig í næstu skoðun hjá ljósmóðurinni...

Ég er annars búin að gera to do list fyrir september mánuð..en ég er að hugsa um að taka fyrstu vikuna í aflsöppun(sjáum nú til hvort að það gangi upp fyrir ofvirku manneskjuna)....en ég ætla að reyna mitt besta...

Fyrir utan þessar litlu fréttir þá hef ég nú ekki mikið annað að segja...

Posted by: Sandra @ 18:41

fimmtudagur, ágúst 16, 2007  

Ég vil byrja á því að þakka þeim sem mundu eftir mér á stelpunni á afmælisdaginn fyrir :o) Það er alltaf gaman að fá sms eða komment á blogginu ;)

Annars var ég víst búin að lofa að koma með listann yfir hvað við Orri fengum í afmælisgjöf..þannig að hér er hann:

Pimmie&Elnas(Bekkjarsystur Orra): Rauðvín og barnafatasett
Joffi, Óli& Grímsi: Weber grillsett
Silla,Hans&Lucas: Ostahnífasett
Systa: Pott, bretti, Svuntu og pottaleppa
Sonja,Árni,Dagur,Eva&Ágúst Máni: 1000 kr. gjafainneign í Fields
Unnur,Björg&Aggi: Ostahníf, Rosendahl kökudisk,uppskrifabók og servíettur
Funi&Sigga: Upptakarasett
Gunnhildur&Arnar: Blómavasa
Harpa&Árni: Íslensk málverk í ramma
Lars,Jannik,Søren,Thomas,Daggert&Martin(bekkjarbræður Orra): Slípirokk og rauðvín
Bryndís,Nikolai,Ási&Viggó: 2 útiluktir og olíulampa í garðinn
Guðrún Björk: Hvítvín og sjal fyrir óléttu konuna
Mamma&pabbi: Pening
Kalla&Siggi: Pening
Víðir: Glerskál
Gulla,Ási,Þórhallur,Andrea,Úa,Darri,Petra,Oliver,Emilia&Nikulás: Pening

Púff...þá er þetta búið...vona að ég hafi ekki gleymt neinum...

Ástæðan fyrir því að ég er fyrst að setja þetta inn núna er sú að ég hef einfaldlega ekki haft tíma til þess að skrifa á bloggið...Skulda víst nokkur e-mail þannig að þið sem eruð að bíða verðið víst að bíða aðeins lengur..er ekki að hafa orku í að setjast fyrir framan tölvuna á kvöldin. Vill helst bara fara beint upp í rúm eftir uppvaskið. Heilsan er nefnilega aðeins farin að klikka. Ég er farin að fá ansi oft fyrirvaraverki og bakverki. Ég hef nú ekki fundið fyrir neinu alla meðgönguna þannig að það hlaut að koma að þessu...ég veit svo sem alveg upp á mig sökina í sambandi við þessa verki...ég er gjörsamlega að fara fram úr sjálfri mér og á erfitt með að hægja á mér. Mætti halda að ég væri ofvirk stundum. Er á fullu núna að pakka niður Blend búðinni á strikinu og er ég ein að því. Var að fá að vita það í gær að ég þyrfti ekkert að stressa mig á því að klára þetta. En ég er búin að vera á hundraði síðan að ég byrjaði þar sem að ég hélt að það þyrfti að drífa þetta af og núna er ég nánast búin! ég fæ hjálp á þriðjudaginn en þá held ég bara að það verði bara allt búið...en ég er nú að reyna að fara aðeins hægar í þetta, ætla allavega að hætta snemma á morgun og eiga frí alla helgina! planið er að slappa af....vona að það verði hægt....

Posted by: Sandra @ 20:19

þriðjudagur, ágúst 07, 2007  

Afmælið heppnaðist ótrúlega vel á laugardaginn. Við erum bara mjög sátt við þetta allt saman...Við fengum rosa gott veður og var ansi vel mætt...Þó svo að það hefðu nú ekki allir mætt sem sögðust ætla að koma, en það er bara þeirra missir...Við fengum fullt af flottum gjöfum, áttum eiginilega ekki orð yfir því hvað þetta voru flottar gjafir, erum alveg ótrúlega þakklát...Svo samdi fjölskyldan hans Orra ljóð um okkur sem Orri las upp á íslensku og dönsku og var mikið hlegið :o)
Núna eru svo allir gestirnir farnir og við tekur hið daglega líf...

Ég er ekki alveg að nenna að henda inn myndum frá afmælinu núna, mun gera það við tækifæri. Svo var ég víst búin að lofa Sillu um að setja það sem við fengum í afmælisgjöf inn á heimasíðuna...það mun líka koma fljótlega...

Ætla að fara að hvíla mig fyrir síðasta daginn í búðinni á strikinu...Ætla að kaupa köku(er ekki að hafa tíma til þess að gera hana sjálf) í tilefni þess að ég verði orðin einu árinu eldri og að þetta sé síðasti vinnudagurinn okkar stelpnanna á strikinu. Síðan taka við flutningar í búðinni á næstu dögum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig restin af ágústmánuði verður vinnulega séð...verð áfram að skúra á fullu og mun svo sennilega taka vaktir í Field og fisketorvet...veit ekki einu sinni núna hvernig ég verð að vinna á fimmtudaginn....þangað til næst....

Posted by: Sandra @ 22:34
 



Hafðu samband:

Sendu mér póst


Bloggarar:

Orri
Silla
Inda
Halla
Matti
Karen
Heiða
Lísbet
Gullan
Dúnna
Sunna
Sammi
Gúrkan
Thelma
Sæunn
Kolbrún
Aprí­l Eik
Háli Slick
Jóhanna
Helga Sif
Elín Marta
Bloggari.is
Aldí­s Marí­a
Þórey Ösp
Sigga Birna
Forystugeitin
Helga Sigríður
Gunnar Pétur
Harpa og Árni
Erna og Bjarni
Harpa Halldórs
Karen Konfekt
Ö–ssi og félagar
Gústi og Hrefna
Hildur og Halldór
Sæunn og Denni
Anna Lísa frænka
Gardentown Girls
Árgangurinn minn


Smáfólkið:

Börnin
Dagur
Anna Sól
Lucas Már
Noel Darri
Róbert Örn
María Kristín
Rúben Breki
Bjarki Kröyer
Ágústa María
Bryndí­s Hekla
Eysteinn Ernir
Arnar Ebenezer
Dagbjört Stjarna
Ragnheiður Elí­sabet
Ungi Huldu og Kristins
Sveina Rósa og Brynja
Rakel Mist og Vilhelm Ari
Svava Rún og Elma Katrí­n
Kristófer Karl og Júlía Marín
Róbert Arnar og Victor Aron
Victor Andri og Margrét Ásta
Sara Emily og Hörður Christian


Ýmislegt á IS:

Mbl
Leit.is
Femin
Skype
Tilveran
Batman
Húmor.is
Betra.net
Spámaður
Friendster
Íslendingabók
Vantar þig far?
Land barnanna
Útivistaparadí­sin
Fréttir frá Ísafirði
Webcam á Ísafirði


Ýmislegt í­ DK:

Fréttir í­ DK
Gulu síðurnar
Stúdentafélagið
íslendingafélagið
Kort yfir Danmörk
Miðasala á tónleika
Samgöngur í Danmörku
Allt um Kaupmannahöfn
Ferðaplan fyrir Danmörk
Webcam í­ Kaupmannahöfn
Upplýsingasíða um Danaveldi


Skrifaðu í gestabókina

MYNDAALBÚ™M 1

MYNDAALBÚM 2

MYNDAALBÚ™M 3

MYNDAALBÚ™M 4