[ Lífið í Køben ] | ||
|
En að öðru...Alexander er að fara í vetrarfrí í næstu viku. Við ætlum að því tilefni að gera eitthvað skemmtilegt saman...erum að spá í að fara í dýragarðinn með Eyrúnu,Birtu og Eysteini...annars munum við bara sjá til hvernig hlutirnir þróast og einnig hversu mikið ég verð að passa. Mér finnst þetta blogg vera bara orðið hálfgert barnablogg..líf mitt snýst þessa dagana nánast einungis um börnin og fjölskylduna...ekkert voðalega spennandi fyrir ykkur lesendur...veit varla hvað ég á að skrifa lengur...finnst eins og að það sé ekkert voðalega mikið til að segja frá...það er kannski þessi tími..veit það ekki...þetta lagast kannski þegar að það fer að vora hehehe...
Núna erum við komin heim eftir vel heppnaða Íslandsferð. Mér finnst alveg ótrúlegt að við vorum 3 vikur heima á Íslandi. Tíminn var rosalega fljótur að líða. Enda var maður á fullu allann tímann. Við byrjuðum á því að fara til Ísafjarðar beint í 80 ára afmæli hjá Ingólfi afa. Afmælið var æðislegt. Það var rosa gaman að hitta alla ættingjana, þá hittir maður nú sjaldan þar sem að maður á heima í útlandinu. Ég var að hitta suma eftir að hafa ekki séð þá í ca. 6 ár! Eftir vel heppnað afmæli tók við vika í afslöppun heima hjá mömmu. Ég notaði þessa viku í að fara í nokkrar heimsóknir og út að labba með Máneyju. Þegar við komum suður leið tíminn ansi hratt. Orri kom sama dag til landsins og við komum aftur suður. Tíminn eftir það fór í jólaundirbúning, skírnarundirbúning, heimsóknir, jólaboð og svo var slakað á inn á milli. Við erum mjög sátt við þessa ferð. Skírnin heppnaðist rosalega vel og vil ég enn og aftur þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur við að gera þennan dag svo frábæran, takk allir kærlega fyrir hjálpina!! Við hefðum aldrei getað gert þetta án ykkar :) ![]() Við vitum reyndar ekki hvenær við komum aftur til landsins þannig að maður verður bara að lifa á þessari ferð þangað til að við komum aftur...það gæti þessvegna liðið einhver ár þangað til að við munum hafa efni á því að koma aftur heim..en það mun bara tíminn leiða í ljós...En annars eru allir alltaf velkomnir í heimsókn til okkar :o) Það var annars mjög gott að koma aftur heim til sín fyrir utan kuldann sem tók á móti okkur..brrr...hann var ekkert eðlilegur...maður var gjörsamlega frosin þegar maður rétt fór út fyrir dyrnar...sem betur fer er orðið hlýrra núna þannig að það er allavega hægt að vera úti. Það eru komin inn 5 ný albúm inn á barnaland. Það voru teknar mjög margar myndir í þessari ferð og hefur það tekið alveg ágætis tíma að setja þær allar á netið. Ég fékk einmitt hringingu frá mömmu í dag sem spurði hvort að ég ætlaði ekki að fara að setja skírnarmyndirnar inn..þannig að það voru nokkrir að bíða..ég get allavega glatt ykkur með því að þær eru allar komnar inn núna :) Að lokum langar mig til þess að þakka fyrir allar þær sængjur-, jóla-og skírnargjafir sem við í fjölskyldu minni fengum á meðan að við vorum á Íslandi, takk enn og aftur fyrir okkur :o) |
Orri
Börnin
Mbl
Fréttir í DK
|